Fara í efni

Bæjarráð

194. fundur
20. apríl 2010 kl. 09:00 - 11:00
í Molanum
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Ársreikningur Fjarðabyggðar 2009
Málsnúmer 1004016
Fjármálastjóri og Magnús Jónsson endurskoðandi frá KPMG sátu þennan lið fundarins. Farið var yfir ársreikning 2009. 
2.
Starfsemi bæjarskrifstofu og þjónustugátta sumarið 2010
Málsnúmer 1002018
Minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 15.apríl lagt fram.  Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði.
3.
Ársreikningur 2008 - Athugun Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga á ársreikningi 2008
Málsnúmer 1004038
Lagt fram bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga frá 13.apríl þar sem kemur fram að vegna athugunar á fjármálum Fjarðabyggðar muni eftirlitsnefndin ekki aðhafast frekar að svo stöddu.  Bréfi vísað til fjármálasviðs.
4.
Stúkuframkvæmd við Eskifjarðavöll - Leyfiskerfi
Málsnúmer 1003091
Lagt fram til kynningar bréf framkvæmdastjóra KSÍ frá 13.apríl þar sem koma fram skilyrði þess að leikið verði á Eskifjarðarvelli í 1.deild karla í sumar. Mannvirkjastjóri gerði grein fyrir afgreiðslu mannvirkjanefndar á erindinu.
5.
Rannsókn á gasmyndun á urðunarstað Fjarðabyggðar í Þernunesi
Málsnúmer 1003112
Umsögn umhverfisfulltrúa frá 19.apríl.  Kostnaður Fjarðabyggðar vegna rannsóknar á gasmyndun á urðunarstað í Þernunesi er áætlaður um 1 milljón.  Bæjarráð samþykkir þáttöku í verkefninu og felur umhverfisfulltrúa að gera grein fyrir hvort kostnaður rúmist innan fjárheimilda ársins.
6.
Umsókn um lóð fyrir Hús-andanna
Málsnúmer 0908085
Ósk um lóð undir kofa fyrir andaræktun. Umsögn byggingarfulltrúa frá 20.apríl.  Bæjarráð fagnar framtakinu og samþykkir að leyfisgjöld verði ekki innheimt.
7.
Aðalfundur Menningarráðs Austurlands - tilnefning fulltrúa
Málsnúmer 1004035
Tilnefningu vísað til MÍF.
8.
Útgáfa á Fjarðabyggðarfréttum
Málsnúmer 0905004
Farið yfir tillögur að efni í 2.tbl. Fjarðabyggðarfrétta.  
9.
Hafnarstjórn - 69
Málsnúmer 1004003F
Fundargerð lögð fram.
10.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 42
Málsnúmer 1004005F
Fundargerð lögð fram.
Lagt fram fundarboð vegna stofnfjárfundar Sparisjóðs Norðfjarðar sem verður haldinn í Nesskóla 29.apríl kl.20:00.