Fara í efni

Bæjarráð

196. fundur
4. maí 2010 kl. 09:00 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Sorpurðun - Samstarf við Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstað og Fljótsdalshrepp
Málsnúmer 0905099
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Greinargerð starfshóps um samstarf í meðhöndlun úrgangs á miðausturlandi lögð fram til kynningar. Mannvirkjastjóri tæpti á helstu atriðum í greinargerðinni. Bæjarráð óskar eftir minnisblaði frá mannvirkjastjóra og umhverfisstjóra með tillögum til að fylgja eftir tillögum í greinargerð starfshópsins. 
2.
Breiðablik - vegna greiningarvinnu á leiguíbúðum aldraða.
Málsnúmer 0905079
Vísað frá öldrunarþjónustunefnd. Greinargerð félagsmálafulltrúa frá 23.mars lögð fram til kynningar.
3.
Ósk um fjögurra vikna sumarlokun leikskólans Kærabæjar
Málsnúmer 1004115
Vísað frá fræðslunefnd. Minnisblað fræðslustjóra frá 26.apríl. Bæjarráð samþykkir að leikskólinn Kæribær verði lokaður í fjórar vikur frá 12.júlí til 9.ágúst.
4.
Fjölmiðlaumfjöllun vegna kosninga - Tilboð í vöktun
Málsnúmer 1004141
Bæjarráð samþykkir að nýta þjónustu Creditinfo fram að kosningum.
5.
Aðalfundur Þróunarfélags Austurlands og Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Málsnúmer 1005001
Skýrslur stjórna Þróunarfélags Austurlands og Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands frá aðalfundum 29.apríl lagðar fram til kynningar.
6.
Fundagerð yfirkjörstjórnar 29.apríl 2010
Málsnúmer 1005002
Bæjarráð samþykkir tillögu yfirkjörstjórnar um opnunartíma kjörstaða í Fjarðabyggð og staðsetningu þeirra sem hér segir laugardaginn 29.maí.
Eskifjörður - Kirkju- og menningarmiðstöðin. Frá kl. 09:00 - 22:00.
Fáskrúðsfjörður - Grunnskólinn. Frá kl. 09:00 - 22:00.
Mjóifjörður - Sólbrekka. Frá kl. 09:00 - 14:00.
Norðfjörður - Nesskóli. Frá kl. 09:00 - 22:00.
Reyðarfjörður - Safnarheimili. Frá kl. 09:00 - 22:00.
Stöðvarfjörður - Grunnskóli. Frá kl.09:00 - 22:00.
 
7.
Lög um fjárhagsskil sveitarfélaga.
Málsnúmer 1004149
Lagt fram til kynningar.
8.
Veiðifélag Dalsár - Aðalfundaboð og fundagerð 2010
Málsnúmer 1004066
Fundargerð aðalfundar frá 28.apríl lögð fram til kynningar.
9.
Afleiðu- og gjaldeyrissamningar við Landsbankann
Málsnúmer 1004011
Minnisblað fjármálastjóra frá 3.maí um uppgjör við skilanefnd Landsbanka Íslands.  Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði og veitir fjármálastjóra heimild til að ganga frá málinu á grundvelli minnisblaðs.
10.
Umsóknir um byggðakvóta
Málsnúmer 1005014
Lagðar fram til kynningar auglýsingar Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta.
11.
Framleiga á gamla húsnæði Knellunnar að Strandgötu 44
Málsnúmer 1004154
Díana vék af fundi undir þessum lið. Bréf Díönu Mjallar Sveinsdóttur frá 29.apríl þar sem óskað er eftir leigu á gamla húsnæði Knellunnar á Eskifirði.  Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur mannvirkjasviði að undirbúa samning sem lagður verði fyrir næsta fund bæjarráðs. 
12.
Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd - 35
Málsnúmer 1004008F
Fundargerð lögð fram.
13.
Fræðslunefnd - 29
Málsnúmer 1004009F
Fundargerð lögð fram.
Jens Garðar óskar eftir að bæjarstjóri kalli eftir viðbrögðum frá heilbrigðisráðuneyti við áskorun bæjarráðs til heilbrigðisráðherra frá 23.mars sl. vegna málefna heilsugæslunnar í Fjarðabyggð.