Fara í efni

Bæjarráð

202. fundur
6. júlí 2010 kl. 08:30 - 12:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Áhugi á rekstri líkamsræktarstöðvar í Neskaupstað
Málsnúmer 1005196
Æskulýðs- og íþróttafulltrúi sat þennan lið fundarins.  Bæjarráð þakkar Vernu og Fjólu áhuga sem þær hafa sýnt rekstri líkamsræktarstöðvar í Neskaupstað. Málið verður tekið upp þegar núgildandi samningur við rekstraraðila rennur út um áramótin.
2.
Samkomulag við hestamannafélagið Blæ vegna breytinga á aðalskipulagi
Málsnúmer 1007001
Framlagður samningur frá 1.júlí, undirritaður með fyrirvara um samþykki bæjarráðs, við Hestamannafélagið Blæ vegna legu nýs Norðfjarðarvegar norðan við félagssvæði Blæs. Bæjarráð samþykkir samninginn með fyrirvara um samþykki Vegagerðarinnar.
3.
Umgengismál á Stöðvarfirði
Málsnúmer 1006236
Jónas Wilhelmsson yfirlögregluþjónn sat þennan lið fundarins.  Rætt um stöðu löggæslumála í Fjarðabyggð.
4.
Kosning 2010 í stjórn starfsmenntunarsjóðs
Málsnúmer 1007010
Bæjarráð sammála um að forstöðumaður mannauðsmála og stjórnsýslu verði fulltrúar í stjórn starfsmenntunarsjóðsins og fjármálastjóri verði til vara.
5.
Rekstur Fjarðaferða
Málsnúmer 2008-06-10-984
Lagt fram til kynningar minnisblað bæjarstýru frá 5.júlí um svör og fyrirspurnir vegna Mjóafjarðarferju og reksturs Fjarðaferða. 
6.
Læknisþjónusta í Fjarðabyggð
Málsnúmer 0903114
Málefni heilsugæslunnar á Eskifirði. Lögð fram samantekt yfir feril málsins í bæjarráði og bæjarstjórn frá því í mars 2009.
 

Enn á ný verða ummæli forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands um málefni heilsugæslunnar í Fjarðabyggð til að vekja undrun og ólgu í byggðarlaginu.  Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu ber forstjóri undir yfirstjórn ráðherra ábyrgð á þeirri þjónustu sem stofnunin veitir og ráðningu starfsliðs. Markmiðið er að íbúar eigi kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem tök eru á að veita til verndar andlegri, líkamlegri og félagslegri heilbrigði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Bæjarráð hefur fjallað um vandann í mönnun heilsugæslunnar á fjölmörgum fundum m.a. með stjórnendum Heilbrigðisstofnunar Austurlands.  Það hefur sent áskoranir og ályktanir til heilbrigðisráðherra sem fer með yfirstjórn þessara mála og minnt á hversu mikilvægur þáttur heilsugæslan er öryggiskennd og velferð íbúa.  Á fundi 19. janúar sl. þar sem kynnt var nýtt skipulag HSA bókaði bæjarráð það sem meginskyldu allra hagsmunaaðila að snúa bökum saman í þessum efnum, leggja til hliðar fyrri skærur og horfa til framtíðar með hagsmuni, velferð og öryggi íbúa Fjarðabyggðar að leiðarljósi og leysa málin innan frá frekar en vera með stóryrði í fjölmiðlum. Ummæli forstjóra HSA í fréttum Ríkissjónvarpsins 30. júní sl. stinga mjög í stúf við þau tilmæli.

Heilbrigðisráðuneytið hefur tilkynnt Fjarðabyggð að ráðuneytið hafi ekki afskipti af ráðningarmálum hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands og þau séu í höndum framkvæmdastjórnar stofnunarinnar.  Bæjarráð Fjarðabyggðar vill enn og aftur minna á hversu mikilvægt það er fyrir íbúa að tryggja varanlega og góða mönnun í heilbrigðisþjónustunni í sátt við samfélagið.

7.
Samvinna vinabæja Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1002098
Lögð fram til kynningar minnisblöð upplýsinga- og kynningarfulltrúa og ferða- og menningarfulltrúa vegna vinabæjarfunda í Fjarðabyggð 4. og 5.október 2010, Franskra Daga 22.-25.júlí og í lok september í Gravelin. 
8.
Heildarendurskoðun á reglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Málsnúmer 1007023
Skýrsla samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins lögð fram til kynningar.
9.
Nýting fasteignaskattsálagningar árið 2010
Málsnúmer 1007021
Yfirlit frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga yfir samanburð á álagningu fasteignaskatts milli sveitarfélaga. Vísað til fjármálastjóra.
10.
Breytingar á stjórnkerfi og stjórnskipulagi Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1006231
Bæjarráð samþykkir tillögur bæjarstýru og fræðslustjóra vegna breytinga á samþykktum atvinnu- og menningarnefndar og fræðslu- og frístundanefndar.  Bæjarráð sendir samþykktir nefnda til umfjöllunar í hlutaðeigandi nefndum með ósk um að framkomnum breytingartillögum verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn 15.júli.
11.
Fundir SSA með aðildarsveitarfélögum 2010
Málsnúmer 1007025
Fundur með fulltrúum SSA verður haldinn miðvikudaginn 7.júlí kl.16:00 á bæjarskrifstofunni á Reyðarfirði.
12.
Kaup á skólahúsgögnum
Málsnúmer 1006274
Bréf skólastjóra Grunnskóla Reyðarfjarðar frá 25.júní og minnisblað fræðslustjóra frá 2.júlí. Bæjarráð fellst á tillögu fræðslustjóra eins og hún er framsett í minnisblaði.
13.
Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
Málsnúmer 0903017
Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 2.júlí vegna hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði en dómnefnd hefur lokið störfum.  Verðlaunaafhending fer fram föstudaginn 9.júlí kl.17:00 í Kirkju- og menningarmiðstöðinni.
14.
740 Nesbakki 17 - kauptilboð
Málsnúmer 1007024
Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra frá 2.júlí til bæjarráðs vegna sölu á íbúð í Nesbakka 17 - fastanúmer 216-9540 - á kr. 8,9 milljónir.
15.
Breyting á sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar
Málsnúmer 1007018
Tillaga eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til bæjarráðs frá 2.júlí vegna breytinga á sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar. Bæjarráð samþykkir breytingu.
16.
Gjaldskrá sorpstöðvar
Málsnúmer 1007020
Framlögð tillaga eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 2.júlí vegna breytinga á gjaldskrá Sorpstöðvar Fjarðabyggðar. Bæjarráð staðfestir tillögu nefndarinnar. 
17.
Athugsemdir vegna breyttrar legu Norðfjarðarvegar
Málsnúmer 1002121
Lagt fram bréf umhverfisstjóra frá 5.júlí til Skipulagsstofnunar vegna athugasemda er fram komu vegna breyttrar legu Norðfjarðarvegar. Vísað til bæjarstjórnar.
18.
Aðgengismál við sundlaug Norðfjarðar
Málsnúmer 0906071
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vegna afgreiðslu á deiliskipulagi. Vísað til bæjarstjórnar.
19.
Edduborgarreiturinn Eskifirði - umgengni
Málsnúmer 0909044
Minnisblað mannvirkjastjóra og byggingarfulltrúa frá fundi 29.júní vegna viðræðna við Frjálsa Fjárfestingarbankann um framhald verkefnis á Edduborgarreitnum á Eskifirði lagt fram til kynningar.
20.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1
Málsnúmer 1007002F
Fundargerð lögð fram.