Bæjarráð
207. fundur
17. ágúst 2010
kl.
16:00
-
18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Boðun verkfalls Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
Slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar sat þennan lið fundarins og fór yfir gang mála í verkfalli félagsmanna í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna eins og deilan hefur snúið að Slökkviliði Fjarðabyggðar.
2.
Tilboð í akstur með nemendur í VA
3.
Tilboð í akstur með íþróttahópa
4.
Ríkisjörðin Grænanes í Norðfirði - Hugsanleg kaup Fjarðabyggðar á jörðinni.
Bæjarstýra fór stuttlega yfir forsögu málsins en það nær aftur til 2008. Bæjarstýru og umhverfisstjóra falið að funda með forsvarsmönnum Golfklúbbs Norðfjarðar um leigu á spildu sem klúbburinn hefur haft til afnota og jafnframt að ræða við Sjávarútvegs- og landbunaðarráðuneytið í framhaldi af því.
5.
Viðhald á félagsaðstöðu fyrir unglinga á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði
6.
Starfsdagar í leikskólum Fjarðabyggðar
7.
Atvinnuþróunarmál í Fjarðabyggð
Rætt um málið og tekið fyrir á næsta fundi.
8.
Námskeið um lýðræði í sveitarfélögum 6.september nk.
Lagt fram til kynningar upplýsingar um námskeið um lýðræði í sveitarfélögum sem haldið verður 6.september nk. á Reykjavíkursvæðinu. Bæjarráð telur að á tímum niðurskurðar þurfi að gæta aðhalds við ferðir og námskeiðahald og því verði námskeiðið ekki sótt á vegum sveitarfélagsins.
9.
Tilfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga
Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Lögð fram greinargerð félagsmálastjóra og fjármálastjóra um tilfærslu á málefnum fatlaðra til sveitarfélaganna sem fyrirhuguð er um áramót. Bæjarráð felur bæjarstýru, félagsmálastjóra og fræðslustjóra að eiga fund með Fljótsdalshéraði í vikunni um fyrirliggjandi hugmyndir.