Fara í efni

Bæjarráð

212. fundur
14. september 2010 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Fundur með formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 1008084
Halldór Halldórson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga sat þennan lið fundarins.  Halldór kynnti starfsemi sambandsins og fór yfir ýmislegt er snýr að hlutverki þess, hlutverki sveitarfélaga og sveitarstjórnarmanna, skipulag sambandsins og helstu verkefni.  Halldór ræddi einnig um væntanlega yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga og fór yfir fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga. 
2.
Húsnæðismál Félags eldri borgara Norðfirði
Málsnúmer 1009021
Þennan lið fundarins sátu fulltrúi Þróttar, mannvirkjastjóri, æskulýðs- og íþróttafulltrúi og skólastjóri Nesskóla.  Rætt um húsnæðismál Félags eldri borgara Norðfirði.  Fram kom hjá mannvirkjastjóra að nokkur kostnaður sé samhliða því að útbúa efri hæð Sigfúsarhúss fyrir starfsemi félagsins. Fulltrúar Nesskóla og Þróttar gera ekki athugasemdir við að Þróttur nýti Mýrina fyrir sitt starf svo framarlega sem forgangur skólans að Mýrinni sé tryggður.  Þróttur þarf fyrst og fremst að nýta húsnæði fyrir sína starfsemi seinni hluta dags og á kvöldin þannig að ekki ættu að verða árekstrar við starfsemi skólans í Mýrinni.   Mannvirkjastjóra falið að skoða málið nánar í samráði við Nesskóla og Þrótt og leggjaminnisblað fyrir bæjarráð.
3.
Tekjuáætlun 2011 og drög að úthlutun fjárhagsramma
Málsnúmer 1009024
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins.  Rætt um forsendur tekjuáætlunar ogúthlutun fjárhagsramma.  Fjármálastjóra falið að úthluta fjárhagsrömmum en felur fjármálastjóra og stjórnendum jafnframt að leita allra leiða til hagræðingar.  Haldnir verða fundir með stjórnendum á næstu dögum.
4.
Breytingar á reglum um framlög til stjórnmálaflokka
Málsnúmer 1009030
Lagt fram minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 13.september með upplýsingum um framlög nokkurra sveitarfélaga til stjórnmálaflokka.  Umræðu frestað.
5.
Niðurstaða ársreiknings Fjarðabyggðar fyrir árið 2009
Málsnúmer 1009033
Bréf eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga frá 31.ágúst og svarbréf bæjarstýru frá 14.september.  
6.
Aðalfundur Raflagna Austurlands 16.september 2010
Málsnúmer 1009055
Aðalfundur verður haldinn að Sævarenda 2 Stöðvarfirði 16.september kl.14:00.  Steinþór Pétursson verður fulltrúi Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
7.
Velferðarvaktin í upphafi skólastarfs
Málsnúmer 1009041
Bréf Velferðarvaktarinnar frá 1.september er varðar líðan barna í grunnskólum lagt fram til kynningar og vísað til fræðslustjóra.
8.
Fundur sveitarstjórnar með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2010
Málsnúmer 1009073
Boðið er til 15 - 20 mínútna funda sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis 27. - 29.september nk.  Forstöðumanni falið að kanna með fjarfund snemma að morgni 29.september.
9.
Frá skíðadeild Fjarðabyggðar um styrk vegna kaupa á skíðagöllum
Málsnúmer 1009082
Framlögð beiðni skíðadeildar Fjarðabyggðar frá 9.september vegna merkinga á skíðagöllum.  Bæjarráð vísar beiðni til upplýsinga- og kynningarfulltrúa.
10.
Franski spítalinn við Hafnarnes
Málsnúmer 0910066
Lagt fram afsal ásamt tillögu bæjarstýru um að fela bæjarstýru afsal gamla læknisbústaðarins á Fáskrúðsfirði til Minjaverndar. Samþykkt.
11.
Breytingar á stjórnkerfi og stjórnskipulagi Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1006231
Bæjarstýra ræddi stjórnsýslu á mannvirkja- og umhverfissviði og stjórnsýslu- og atvinnusviði.  Vísað til bæjarstjóra til frekari vinnslu með hlutaðeigandi stjórnendum.
12.
Loftræstikerfi í Kirkju- og menningarmiðstöðinni
Málsnúmer 1009083
27.september verður haldin hátíð í Kirkju- og menningarmiðstöðinni vegna 10 ára afmælis miðstöðvarinnar.  Komið hefur fram ósk frá sóknarpresti um að Fjarðabyggð komi að því að fullklára loftræstikerfi í húsinu í tilefni af afmælinu. Vísað til mannvirkjastjóra með beiðni um athugun á kostnaði.
13.
Atvinnu- og menningarnefnd - 2
Málsnúmer 1009008F
Fundargerð lögð fram.
14.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 3
Málsnúmer 1009007F
Fundargerð lögð fram.
15.
Fræðslu- og frístundanefnd - 3
Málsnúmer 1009009F
Fundargerð lögð fram.
16.
Félagsmálafundur nr. 1
Málsnúmer 1009063
Fundargerð lögð fram.
17.
Barnaverndarnefnd - fundur nr. 1
Málsnúmer 1009096
Fundargerð lögð fram.