Bæjarráð
Bæjarráð tilnefnir eftirfarandi aðila í heilbrigðisnefnd. Aðalmaður Valdimar O. Hermannsson sem jafnframt er formaður HAUST, varamaður hans er Elvar Jónsson. Fulltrúi náttúruverndarnefnda er Krístín Ágústdóttir og varamaður hennar er Eiður Ragnarsson. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Tillaga bæjarstjóra og fjármálastjóra til bæjarráðs vegna tilmæla til nefnda vegna hagræðingaraðgerða samhliða fjárhagsáætlunarferli:
Á fundi bæjarráðs nr. 212 þann 14. september s.l. var fjármálastjóra og öðrum stjórnendum falið að leita allra leiða til hagræðingar í rekstri sveitarfélagsins og stofnana þess samhliða gerð fjárhagsáætlunar. Ákveðið hefur verið að haldnir verði tvöfaldir bæjarráðsfundir 13. og 20. október n.k. í tengslum við vinnu við hagræðingaraðgerðir. Á fyrri fundinum verði kynntar tillögur stjórnenda og á seinni fundinum teknar ákvarðanir um hagræðingaraðgerðir. Þeim tilmælum er beint til allra nefnda að þær geri bæjarráði grein fyrir megináherslum og hugmyndum varðandi rekstur viðkomandi málaflokks m.t.t. væntra hagræðingaraðgerða. Gert er ráð fyrir að formenn nefnda, ásamt viðkomandi sviðsstjóra, verði viðstaddir þegar farið verður yfir hagræðingartillögur.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.