Fara í efni

Bæjarráð

215. fundur
12. október 2010 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson mannauðsstjóri
Dagskrá
1.
Umsókn um lóð við Mjóeyrarhöfn
Málsnúmer 2009-02-13-215
Þennan lið fundarins sátu fulltrúar frá Mannviti þeir Haukur Óskarsson, Valgeir Kjartansson, Eyjólfur Árni Rafnsson auk framkvæmdastjóra hafnanna og formanns hafnarstjórnar.
2.
Byggðakvóti fiskveiðiársins 2010-2011
Málsnúmer 1009212
Bréf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins frá 27.september.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um byggðarkvóta fyrir alla byggðakjarna.  Bæjarstjóra falið að ganga frá umsókn.
3.
Úthlutun Sjávarútvegs-og landbúnaðarráðuneytsins á leyfum til veiða á Sæbjúga
Málsnúmer 1009066
Svar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins vegna fyrirspurnar bæjarráðs frá því í síðasta mánuði.
Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með niðurstöðu ráðuneytisins.  Bæjarstjóra falið að ítreka fyrri beiðnir og óska eftir því að leyfi verði veitt.
4.
Almenningssamgöngur - Kynning á Evrópusambandsverkefni
Málsnúmer 1004103
Tillaga Eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá fundi 4.október "Nefndin leggur til við bæjarráð að farið verði í viðræður við Vegagerðina um að sveitarfélagið taki yfir sérleyfið, með það í huga að endur-skipuleggja almenningssamgöngur innan sveitarfélagsins. Jafnframt er lagt til að stofnaður verði samráðshópur hagsmunaraðila til að vinna að verkefninu með sveitarfélaginu og Þróunarfélagi Austurlands"

Bæjarstjóra falið að skipa fulltrúa Fjarðabyggðar í starfshóp um samgöngumál í Fjarðabyggð og ganga frá bréfi til Vegagerðar ríkisins og Alcoa Fjarðaáls um tilnefningu af þeirra hálfu í starfshópinn.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

5.
Samkeppni um hönnun nýrrar Hulduhlíðar
Málsnúmer 0912043
Bréf starfsmanna Hulduhlíðar frá 7.október.
Bæjarráð samþykkir að boða til kynningarfundar með starfsfólki Hulduhlíðar þar sem farið verði yfir málið í heild sinni.
6.
Vegna lóðar að Strandgötu 86b Eskifirði
Málsnúmer 2008-07-28-1251
Bréf Árna Helgasonar og Gísla Benediktssonar frá 28.september.  Mannvirkjastjóra falið að svara erindi á grundvelli minnisblaðs. 
7.
Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2010
Málsnúmer 1010053
Ársfundur verður haldinn í Reykjavík föstudaginn 15.október kl. 14:00 á hótel Hilton Reykjavík Nordica.
Bæjarstjóri fer með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
8.
Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir Alcoa Fjarðaál
Málsnúmer 1008079
Lagt fram minnislbað mannvirkjastjóra, dagsett 12. október 2010.
Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra og felur honum að afgreiða umsögn til Umhverfisstofnunar.
9.
Hafnarstjórn - 75
Málsnúmer 1010001F
Fundargerð lögð fram.
10.
Fræðslu- og frístundanefnd - 4
Málsnúmer 1010002F
Fundargerð lögð fram.
11.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 5
Málsnúmer 1009026F
 Fundargerð lögð fram.
12.
Atvinnu- og menningarnefnd - 4
Málsnúmer 1009025F
Fundargerð lögð fram.