Bæjarráð
217. fundur
19. október 2010
kl.
16:00
-
18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2011
2.
Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar
Umsögn fjármálastjóra um framkvæmdahluta brunavarnaráætlunar lögð fram. Tekið fyrir á næsta fundi.
3.
Skipulag almannavarna í héraði
4.
Beiðni um styrkveitingu vegna ársins 2011
5.
Viðtöl við þingmenn Norðausturkjördæmis 25.október 2010
6.
Lán í erlendum gjaldmiðlum
Beiðni fjármálastjóra frá 19.október um að bæjarráð heimili að unnið verði lögfræðiálit um lögmæti lána og samninga sveitarfélagsins í erlendum gjaldmiðlum vegna dóms hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar. Bæjarráð samþykkir beiðnina.
7.
Tilnefning í starfshópinn "Austfirzk Eining"
Í framhaldi af samþykkt frá aðalfundi SSA, sem haldinn var á Breiðdalsvík í september, er óskað eftir að sveitarfélög á starfssvæði SSA endurskipi í starfshóp SSA og sveitarstjórnarráðuneytisins og tilnefni einn fulltrúa. Jens Garðar Helgason verður fulltrúi Fjarðabyggðar í hópnum.
8.
Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
9.
Ágóðahlutagreiðsla 2010
10.
Málþing um stöðu fámennra byggða 30. október 2010
Málþing um stöðu fámennra byggða verður haldið að Ketilási í Fljótum 30.október. Málþingið er haldið af Sveitarfélaginu Skagafirði í samvinnu við samtökin Landsbyggðin lifi og íbúa í Fljótum.
11.
Fjárhagsáætlun Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2011
12.
Fjárhagsáætlun 2011 - Fjárfestingaáætlun
Fjárfestingaráætlun ársins 2011 lögð fram til kynningar. Tekið fyrir á næsta fundi.
13.
Fundargerð 777.fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
14.
Fundagerð 778.fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
15.
Kynning á íslensku safnastarfi
16.
Útsendingarskilyrði Ríkisútvarpsins
Forstöðumanni stjórnsýslu falið að hafa samband við Ríkisútvarpið og óska eftir svörum vegna slæmrar útsendingarskilyrða Rásar 2 í hluta Fjarðabyggðar.
17.
Tilnefning í stjórn Náttúrustofu Austurlands
Bæjarráð tilnefndir Valdimar O. Hermannsson sem aðalfulltrúa í stjórn Náttúrustofu Austurlands í stað Líneikar Önnu Sævarsdóttur sem verður sameiginlegur fulltrúi Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs í stjórninni.
18.
Hafnarstjórn - 76
Fundargerð lögð fram.