Fara í efni

Bæjarráð

218. fundur
26. október 2010 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Beiðni til bæjarráðs vegna Egilsbúðar
Málsnúmer 1002136

Þennan lið fundarins sat Jón Hilmar Kárason rekstraraðili Egilsbúðar.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Rætt um rekstur Egilsbúðar í vetur.
2.
Námstyrkir og fjárveitingar - beiðni um aukafjárveitingu.
Málsnúmer 1010134

Minnisblað mannauðsstjóra vegna beiðni um framlag til námsstyrkja á fjárhagsáætlun ársins 2010 en ekki var gert ráð fyrir framlagi á áætlun ársins. Frestað til næsta fundar.

3.
Endurskoðun á samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og stofngjöld holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1010109
Lögð fram drög að nýrri samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og stofngjöld holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð.  Mannvirkjastjóri var í símasambandi við fundinn og fór yfir helstu breytingar á nýrri samþykkt.  Helstu breytingar á samþykktinni er að bætt er við flokkum vegna þjónustugjalda bygginga- og skipulagsfulltrúa ( 7.gr. ) auk vísitöluhækkana. Einnig er greiðslu-fyrirkomulagi gatnagerðagjalda breytt ( 10 gr. )  Bæjarráð vísar samþykktinni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.  
4.
Fjárhagsáætlun 2011
Málsnúmer 1009099
Fjármálastjóri lagði fram endurskoðaðan tímaramma vegna vinnu við fjárhagsáætlun. Fjármálastjóri fór jafnframt yfir stöðu tekjuáætlunar 2011 og yfirlit málaflokka. Næsti fundur í bæjarráði verður haldinn með sex fulltrúum.
5.
Barnaverndarnefnd nr. 3
Málsnúmer 1010156
Fundargerð lögð fram.
6.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 6
Málsnúmer 1010010F
Fundargerð lögð fram.