Fara í efni

Bæjarráð

221. fundur
16. nóvember 2010 kl. 16:00 - 20:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Tillögur um skipulagðar samgöngur nemenda í VA og íþróttahópa skólaárið 2009-2010
Málsnúmer 0908047
Þennan lið fundarins sátu mannvirkjastjóri og umhverfisstjóri. Framlagt minnisblað umhverfisstjóra frá 15.nóvember.  Bæjarráð samþykkir tillögur umhverfisstjóra og felur honum framkvæmd.
2.
Sauðfjárveikivarnarlína í Reyðarfirði
Málsnúmer 1011086
Þennan lið fundarins sátu mannvirkjastjóri og umhverfisstjóri. Bréf frá ábúendum jarðarinnar Áreyja frá 10.nóvember er varðar ósk um nýja staðsetningu sauðfjárveikivarnarlínu. Vísað til landbúnaðarnefndar með ósk um umsögn. 
3.
Gjaldskrá Vatnsveitu Fjarðabyggðar, aukavatnsskattur
Málsnúmer 1011012

Tillaga eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um hækkun á notkunargjaldi hjá Vatnsveitu Fjarðabyggðar. Notkunargjaldið verður eftir breytingu 29 kr/m3

Bæjarráð vísar liðnum til loka fjárhagsáætlunargerðar en allar gjaldskrárbreytingar verða þá afgreiddar.
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

4.
Leiga á lóð á Hjallaleiru
Málsnúmer 1011074
Beiðni Yls ehf. um leigu á lóð undir steypustöð.  Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 16.nóvember. Bæjarráð getur ekki samþykkt beiðnina og vísar máli til afgreiðslu mannvirkjastjóra skv. tillögu í minnisblaði.
5.
Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
Málsnúmer 0903017
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Ósk mannvirkjastjóra um staðfestingu á hönnunarsamningi við Studio Strik.   Bæjarráð staðfestir samning.
6.
Áskorun frá velferðavaktinni um aðgæslu í hagræðingarmálum
Málsnúmer 1010195
Lagt fram til kynningar.
7.
Beiðni um stuðning við Snorraverkefnið sumarið 2011
Málsnúmer 1011079
Beiðni verkefnisstjóra Snorraverkefnisins frá 8.nóvember um stuðning Fjarðabyggðar við verkefnið. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
8.
Kosning til stjórnlagaþings 27.nóvember 2010
Málsnúmer 1010172
Ákvörðun um kjörstaði og opnunartíma vegna kosninga til stjórnlagaþings 27.nóvember nk.   Bæjarráð samþykkir að kjördeildir í Fjarðabyggð verði í grunnskólum Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar, Nesskóla og safnaðarheimilum á Eskifirði og Reyðarfirði. Kjörfundur mun standa frá 09:00 - 22:00 á öllum stöðum. Íbúar í Mjóafirði verða á kjörskrá á Norðfirði en utankjörfundarþjónusta í Mjóafirði verður efld.
9.
Beiðni um greiðslu leigukostnaðar fyrir Kirkju- og Menningarmiðstöð Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1011071
Beiðni forstöðumanns Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar frá 4.nóvember um að Fjarðabyggð greiði leigukostnað menningarmiðstöðvarinnar til Eskifjarðarkirkju. Vísað til frekari skoðunar í tengslum við fjárhagsáætlunarvinnu. Jafnframt vísað til upplýsinga í atvinnu- og menningarnefnd.
10.
Frestun á hækkun vaxtaálags á lánasamningi
Málsnúmer 1011087
Minnisblað fjármálastjóra frá 11.nóvember um viðauka við lánasamning vegna frestunar á hækkun vaxtaálags.  Bæjarráð samþykkir að fresta hækkun vaxtaálags.
11.
Opnun Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði
Málsnúmer 1011106
Framlagt minnisblað fræðslustjóra frá 16.nóvember. Þar sem nægur snjór er kominn í Oddsskarð vill bæjarráð stuðla að því að almenningur geti nýtt skíðasvæðið sem fyrst.  Bæjarráð heimilar því opnun þess frá 18.nóvember og veitir 1 milljón til verksins af liðnum óráðstafað 21-69.
12.
Fjárhagsáætlun 2011
Málsnúmer 1009099
Áframhald vinnu við fjárhagsáætlun 2011. Fjármálastjóri, mannvirkjastjóri og fræðslustjóri sátu þennan lið fundarins að hluta.  Jens Garðar vék af fundi kl. 19:30.
13.
Fræðslu- og frístundanefnd - 5
Málsnúmer 1011005F
Fundargerð lögð fram.
14.
Atvinnu- og menningarnefnd - 6
Málsnúmer 1011004F
Fundargerð lögð fram.
15.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 7
Málsnúmer 1010017F
Fundargerð lögð fram.
16.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2010
Málsnúmer 1011072
Fundargerð lögð fram.
17.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2010
Málsnúmer 1011073
Fundargerð lögð fram.
Bæjarstjórnarfundi er vera átti 18.nóvember hefur verið frestað til 25.nóvember vegna afgreiðslu kjörskráar til stjórnlagaþings. Lagður fram undirskriftarlisti ungmenna í Fjarðabyggð er varðar fjárframlög til félagsmiðstöðvanna til að halda uppi og efla forvarnarstarfsemi.