Fara í efni

Bæjarráð

223. fundur
29. nóvember 2010 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Endurskoðaður samningur um hlutverk Skólaskrifstofu Austurlands
Málsnúmer 1011099
Fræðslu- og frístundanefnd hefur samþykkt samning fyrir sitt leyti. Bæjarráð vísar samningi til bæjarstjórnar til afgreiðslu með fyrirvara um mögulegar breytingar. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.
2.
Aðalfundur Leikfélags Reyðarfjarðar 2010 - Ályktun
Málsnúmer 1011200
Bréf Leikfélags Reyðarfjarðar frá 21.nóvember er varðar ályktun aðalfundar félagsins um afnot af Félagslundi og ósk um viðræður um mögulega nýtingu hússins.  Bæjarstjóra falið að ræða við forsvarsmenn félagsins.
3.
Árgjöld sveitarfélaga til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Málsnúmer 1009205
Framlögð tillaga bæjarstjóra frá 29.nóvember um að ákvörðun, varðandi framlag til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands, verði frestað þar til niðurstaða liggi fyrir um endurskipulagningu stoðstofnana. Tillögu vísað til frekari umræðu í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun ársins 2011.
4.
Framlög til starfsemi Ungmenna og íþróttasambands Austurlands 2011
Málsnúmer 1011199
Bréf ÚÍA frá 19.nóvember er varðar framlög sveitarfélaga til sambandsins.  Bæjarráð getur ekki að svo stöddu orðið við beiðni um íbúaframlag til ÚÍA.
5.
Jólasjóður - aðstoð fyrir jólin
Málsnúmer 1011032
Beiðni Rauða Kross Íslands um stuðning vegna aðstoðar við einstaklinga fyrir jólin.  Bæjarráð sammála um að senda ekki út jólakort í ár en styrkja Rauða Krossinn þess í stað um 300.000.
6.
Lok afskriftartíma grunnskóla frá ríki til sveitafélaga
Málsnúmer 1011007
Bæjarráð samþykkir framlagða yfirlýsingu og afsal vegna færslu eignarhluta ríkisins í grunnskólabyggingum til Fjarðabyggðar.  Bæjarstjóra falið að ganga frá yfirlýsingu og afsali.
7.
Íbúsamtök Eskifjarðar - Fyrirspurnir til bæjarráðs í nóvember 2010
Málsnúmer 1011115
Framlögð fyrirspurn Íbúasamtaka Eskifjarðar frá 16.nóvember er varðar Edduborgarreitinn, aðbúnað veraldarvina og heilbrigðisþjónustu. Vísað til hlutaðeigandi starfsmanna með ósk um að minnisblöð verði lögð fyrir næsta fund bæjarráðs.
8.
Gjaldskrá í íþróttamannvirkjum og skólum 2011
Málsnúmer 1011167
Framlögð greinargerð fræðslustjóra frá 26.nóvember. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrám.
9.
Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu
Málsnúmer 1011150
Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá.
10.
Gjaldskrá fyrir hunda- og kattarhald í Fjarðabyggð árið 2011
Málsnúmer 1011013
Framlögð tillaga mannvirkjastjóra frá 17.nóvember. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald.
11.
Gjaldskrá Sorpmiðstöðvar fyrir árið 2011
Málsnúmer 1011011
Framlögð tillaga mannvirkjastjóra frá 21.nóvember. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá Sorpmiðstöðvar.
12.
Gjaldskrár Hitaveitu Fjarðabyggðar árið 2011
Málsnúmer 1011001
Framlögð tillaga mannvirkjastjóra frá 8.nóvember. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar.
13.
Gjaldskrá Vatnsveitu Fjarðabyggðar, aukavatnsskattur
Málsnúmer 1011012
Framlögð tillaga mannvirkjastjóra frá 8.nóvember. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá Vatnsveitu Fjarðabyggðar og að aukavatnsskattur verði 25 kr. m3
14.
Fundagerð 781.fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 1011170
Fundargerð lögð fram til kynningar.
15.
Leiga á lóð á Hjallaleiru
Málsnúmer 1011074
Framlögð umsókn Yls ehf. um lóð að Hjallaleiru 23 Reyðarfirði undir rekstur steypustöðvar.  Vísað til umsagnar mannvirkjastjóra og fjármálastjóra.
16.
Fjárhagsáætlun 2011
Málsnúmer 1009099
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir helstu lykiltölur og áætlunarstuðla. Drögum að fjárhagsáætlun 2011 vísað til bæjarstjórnar.
 
Jens Garðar Helgason vék af fundi kl.18:20. Minnisblað mannauðsstjóra um upplýsingatæknimál 2011 lagt fram. Tekið fyrir á næsta fundi.