Bæjarráð
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Orkusjóður hefur auglýst styrki til jarðhitaleitar á köldum svæðum 2010. Heildarfjárveiting að þessu sinni eru 25 milljónir og er umsóknarfrestur er til 31. desember 2010. Bæjarráð samþykkir tillögu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar að sótt verði um að nýju um styrk til jarðhitaleitar og felur mannvirkjastjóra að ganga frá umsókn.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Lögð fram drög að samningi við landeiganda, skýrsla Ómars Bjarka og hagkvæmnisathugun Mannvits vegna jarðhitaleitar í Reyðarfirði. Tekið fyrir á næsta fundi.
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð vísað til bæjarstjórnar.
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Lögð fram tillaga að breytingu á áður samþykktri gjaldskrá fyrir Sorpmiðstöð Fjarðabyggðar árið 2011 sem samþykkt var í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd 13.desember. Við nánari skoðun og yfirferð á tillögu að gjaldskrá er lagt til að álagningu sé breytt á eftirfarandi hátt. Sorphreinsunargjald verði kr. 23.778 en gert var ráð fyrir að það væri kr. 26.858.- á hverja almenna sorptunnu. Sorpförgunargjald verði kr. 10.168 en gert var ráð fyrir að það væri kr. 7.087.- á hverja almenna tunnu. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Með breytingu er ekki verið að breyta heildargjaldi en um er að ræða flutning á milli hreinsunar- og förgunargjalda.
Bæjarráð samþykkir framlagða breytingu.