Bæjarráð
229. fundur
18. janúar 2011
kl.
17:00
-
19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Bréf um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga
Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Bréf velferðarráðuneytisins frá 3.janúar og minnisblað félagsmálastjóra frá 16.janúar er varða fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og stöðu mála í Fjarðabyggð. Málið rætt og félagsmálastjóra falið að vinna áfram með fjárhagsaðstoð á sömu forsendum og verið hefur.
2.
Stefnumótun félagsþjónustusviðs Fjarðabyggðar fyrir árið 2011
Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Félagsmálanefnd samþykkti á fundi 10.janúar að vinna að stefnumótun um félagsþjónustu í samstarfi við Fljótsdalshérað. Stefnumótunin byggir á samningum allra sveitarfélaga á Austurlandi um yfirtöku á málefnum fatlaðra. Bæjarráð samþykkir tillögu félagsmálanefndar.
3.
Tilfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga
Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Samantekt félagsmálastjóra um stöðu mála vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðra lögð fram til kynningar.
4.
Reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum
Ósk fræðslu- og frístundanefndar frá 12.janúar um breytingu á reglugerð nr.814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Framlögð minnisblöð fræðslustjóra frá 9.janúar og 12.janúar er varða viðmið vegna 10 ára aldurtakmarks og skilyrði vegna laugargæslu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja eftir bókun fræðslu- og frístundanefndar.
5.
Atvinnuleysistölur fyrir Austurland - Janúar 2011
Nánari upplýsingar um atvinnuleysistölur í janúar lagðar fram til kynningar og vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
6.
Byggðakvóti fiskveiðiársins 2010-2011
Framlagt bréf Vigfúsar Vigfússonar f.h. Ölduóss ehf. frá 12.janúar er varðar byggðakvóta. Stjórnsýslustjóra falið að svara erindinu á grundvelli reglugerðar sjávarútvegsráðuneytisins og skilyrða Fjarðabyggðar vegna úthlutunar á byggðakvóta.
7.
Drög að frumvarpi nýrra sveitarstjórnarlaga
Frestur til að skila inn umsögnum, vegna draga að frumvarpi til nýrra sveitarstjórnarlaga, er til 23.janúar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma á framfæri athugasemdum vegna tímaramma fjárhagsáætlunar.
8.
Endurskoðun á undanþágulista vegna verkfalla
Minnisblað mannauðsstjóra frá 14.janúar. Bæjarráð staðfestir framlagðan lista og samþykkir framlögð drög að auglýsingu vegna starfa er falla undir 5.- 8 .tl. 19.gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og veitir tilgreindum störfum undanþágu frá verkfallsrétti.
9.
Starfshópur um almenningssamgöngur
10.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
11.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011
Fundargerð barnaverndarnefndar frá 13.janúar lögð fram.
12.
Atvinnu- og menningarnefnd - 8
13.
Fræðslu- og frístundanefnd - 9