Bæjarráð
230. fundur
25. janúar 2011
kl.
08:30
-
11:00
í þjónustumiðstöðinni í Neskaupstað
Fundargerð ritaði:
Jóhann Eðvald Benediktsson
mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
Fundur Samfylkingarfélags Fjarðabyggðar með forsætisráðherra
Guðmundur Rafnkell Gíslason og Eydís Ásbjörnsdóttir frá stjórn Samfylkingarfélags Fjarðabyggðar komu á fundinn til að fara yfir efni fundar sem stjórnin, ásamt fleiri aðilum, átti með Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra á dögunum um ný Norðfjarðargöng. Bæjarráð fagnar framtakinu en bæjarráðið mun fara á fund innanríkisráðherra á næstunni.
2.
Sauðfjárveikivarnarlína í Reyðarfirði
Umsögn mannvirkjastjóra frá 14.janúar. Bæjarráð mun hlutast til um að sauðfjárveikivarnarlína verði færð í norður landamörk Áreyja eða að öðrum kosti verði línan gerð að huglægri línu. Umhverfisstjóra falið að koma áherslum Fjarðabyggðar á framfæri við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og Matvælastofnun auk þess sem umhverfisstjóra er falið, ásamt formanni landbúnaðarnefndar, að koma á fundi með Fljótsdalshéraði. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
3.
Refa -og minkaveiði fyrirkomulag 2011
Bæjarráð samþykkir tillögu landbúnaðarnefndar um fyrirkomulag refa- og minkaveiðar fyrir árið 2011, en óskar eftir að fá upplýsingar reglulega um frágang veiðanna.
4.
Snjóflóðavarnir á Fáskrúðsfirði
Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2011. Bæjarráð vísar málinu til eigna-, skipulags og umhverfisnefndar til umfjöllunar og meðferðar. Einnig er mannvirkjastjóra falið að að óska eftir viðræðum við Ofanflóðasjóð um framkvæmdaáætlun sjóðsins fyrir alla Fjarðabyggðar.
5.
Skoðun á nýtingu Fjarðabyggðarhallar fyrir blak
Lagt fram bréf frá blakdeild Þróttar, dagsett 19. janúar 2011, er varðar afnot af Fjarðabyggðarhöllinni til að halda blakmót. Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og frístundanefndar.
6.
Heimsókn frá Motus
Fulltrúar frá Motus komu og kynntu þróun og breytingar sem orðið hafa á þjónustu fyrirtækisins frá því að fyrirtækið fór að þjónusta Fjarðabyggð.
7.
Þriggja ára áætlun 2012 - 2014
Fjármálastjóri fór yfir drög að þriggja ára áætlun fyrir árin 2012 til 2014. Bæjarráð ræddi málið og fór yfir forsendur áætlunarinnar. Bæjarráð vísar fjárfestingaráætlun til umræðu og forgangsröðunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn.
8.
Rafræn þjónusta við íbúa og miðlun upplýsinga
Lagt fram minnisblað mannauðsstjóra, dagsett 20. janúar, um rafræna miðlun á upplýsingum til íbúa. Bæjarráð samþykkir tillögu mannauðsstjóra og felur honum afgreiðslu málsins.
9.
Endurskoðun á undanþágulista vegna verkfalla
Lagður fram undanþágulisti vegna verkfalla. Bæjarráð samþykkir listann en um er að ræða fullnaðarafgreiðslu samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar.
10.
Starfshópur um skólamál í Fjarðabyggð
Lagt fram uppkast að erindisbréfi starfshóps um skólamál í Fjarðabyggð. Hópinn munu skipa Jens Garðar Helgason formaður bæjarráðs, Elvar Jónsson bæjarráðsmaður og Jósep Auðunn Friðriksson formaður fræðslu- og frístundanefndar. Starfsmaður hópsins er fræðslustjóri og mun bæjarstjóri einnig vinna með hópnum. Bæjarráðs samþykkir framlagt erindisbréf og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
11.
Menningarmiðstöðvar og nýir menningarsamningar 2010
Lögð fram drög að nýjum samningi við ríkið um menningarsamstarf á Austurlandi. Bæjarráð ræddi málið og vísar málinu til atvinnu- og menningarnefndar til umræðu.
12.
Beiðni um afnot af logoi Fjarðabyggðar
Bréf frá yngriflokkum Fjarðabyggðar, dagsett 24. janúar 2011. Þar er farið fram á leyfi bæjarráðs til að nota logo Fjarðabyggðar á hlífðarfatnað þjálfara og keppnisbúninga félagsins. Bæjarráð samþykkir að félagið noti logo Fjarðabyggðar á fatnað félagsins. Einnig óskar félagið að Fjarðabyggð styrki félagið um merkingu á þjálfarafatnaði. Bæjarráð vísar beiðni til fræðslu- og frístundanefndar.
13.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 12
Fundargerð lögð fram.