Bæjarráð
236. fundur
8. mars 2011
kl.
08:30
-
11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Stefnumótun félagsþjónustusviðs Fjarðabyggðar fyrir árið 2011
Þennan lið fundarsins sat félagsmálastjóri og gerði grein fyrir sameiginlegri stefnumótunarvinnu félagsþjónustusviða Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs.
2.
Fjarskiptamál á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði
Mannauðsstjóri sat þennan lið fundarins. Bréf Póst- og fjarskiptastofnunar frá 24.febrúar er varðar fjarskiptamál á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði og minnisblað mannauðsstjóra frá 7.mars. Mannauðsstjóra falið að skoða málið betur og upplýsa bæjarráð síðar í mánuðinum.
3.
Rekstur Egilsbúðar
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning við Fjarðahótel ehf. um rekstur Egilsbúðar og felur bæjarstjóra að undirrita samning.
4.
Ferjusiglingar Mjóifjörður
Svarbréf Vegamálastjóra frá 9.febrúar vegna fyrirhugaðra breytinga á ferjusiglingum til Mjóafjarðar. Bæjarstjóra falið að svara bréfi.
5.
Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Þennan lið fundarsins sátu fulltrúar aðila sem hafa áhuga á að setja á laggirnar laxeldi í Reyðarfirði auk formanns atvinnu- og menningarnefndar og mannvirkjastjóra. Kynntar voru hugmyndir um fiskeldi í Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði.
6.
Byggðakvóti fiskveiðiársins 2010-2011
Framkvæmdastjóri hafnanna sat þennan lið fundarins. Bréf sjávarútvegs- og landsbúnaðarráðuneytisins frá 3.mars er varðar birtingu nýrrar auglýsingar um byggðakvóta vegna ónákvæmni í auglýsingu nr.46 frá 24.janúar sl. lagt fram til kynningar.
7.
Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
Frestur til að skila inn framboðum til stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga er til hádegis föstudaginn 18.mars. Bæjarráð sammála að bíða eftir að umræða hafi farið fram innan SSA.
8.
Ályktun stjórnar vegna niðurskurðar til leikskóla hjá sveitarfélögum
Bréf Félags leikskólakennara frá 22.febrúar þar sem ályktun frá 16.febrúar er komið á framfæri. Lagt fram til kynningar og vísað til fræðslu- og frístundanefndar.
9.
Niðurskurður hjá sveitarfélögum á þjónustu er varðar börn
Bréf umboðsmanns barna frá 2.mars þar sem fjallað er um áhyggjur umboðsmanns vegna áhrifa niðurskurðar sveitarfélaga á börn. Lagt fram til kynningar og vísað til fræðslu- og frístundanefndar og félagsmálanefndar.
10.
Fjárframlög sveitarfélaga til stjórnmálasamtaka
Lögð fram til kynningar greinargerð, sem unnin var fyrir Samband sveitarfélaga, með niðurstöðum könnunar á fjárframlögum sveitarfélaga til stjórnmálasamtaka.
11.
Afmælishátíð 23-25.mars 2012
Boð um að taka þátt í hátíðahöldum í tilefni af 175 ára afmæli Jyväskylä. Mannauðsstjóra falið að svara erindi sem tengiliður við vinabæi.
12.
25.landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Landþing Sambands sveitarfélaga verður haldið í Reykjavík föstudaginn 25.mars nk. - Kjörnir fulltrúar eru Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson og Elvar Jónsson auk þess sem Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri er áheyrnarfulltrúi. Ársfundur Lánasjóðs sveitarfélaga verður haldinn að loknu landsþingi.
13.
Fundagerðir Samband íslenskra sveitarfélaga árið 2011
Fundargerð stjórnar sambandsins nr. 784 lögð fram til kynningar.
14.
Hafnarstjórn - 81
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 81 frá 1.mars lögð fram.