Bæjarráð
239. fundur
29. mars 2011
kl.
08:45
-
11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Fundur Fjarðabyggðar og Alcoa Fjarðaáls
Þennan lið fundarins sátu frá Alcoa Fjarðaáli þeir Guðmundur Bjarnason og Jóhann Helgason auk Ástu Kristínar Sigurjónsdóttur formanns atvinnu- og menningarnefndar. Rætt um málefni álversins, vinnubúðir, fullvinnslu áls, málefni slökkviliðs og starfsmannamál.
2.
Deiliskipulag vegna jarðarinnar Fannardals
Jón Björn Hákonarson vék af fundi undir þessum lið. Bréf Guðröðar Hákonarsonar frá 22.mars þar sem hann, sem eigandi jarðarinnar Fannardals, dregur deiliskipulag jarðarinnar til baka. Vísað til bæjarstjóra og mannvirkjastjóra.
3.
Árgjöld sveitarfélaga til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Bæjarráð hefur yfirfarið málefni Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands og ítrekar fyrri afstöðu sína er varðar framlög, þ.e. að greiðslum til sjóðsins verði frestað þar til endurskoðun á skipulagi stoðstofnana sveitarfélaga á Austurlandi er lokið, enda liggi niðurstaða þeirrar vinnu fyrir sem allra fyrst. Stjórnsýslustjóra falið að svara erindi.
4.
Endurfjármögnun lána 2011
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Svanbjörn Thoroddsen frá KPMG kynnti, í gegnum síma, leiðir til endurfjármögnunar hjá sveitarfélaginu.
5.
740 Starmýri 17- 19 - Kauptilboð
5,5 milljóna kauptilboð, dagsett 21.mars frá Bjarka Sveinssyni, í Starmýri 17 - 19 í Neskaupstað. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti tilboðið á fundi 28.mars og vísaði staðfestingu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir tilboðið.
6.
Aðalfundur Sparisjóðs Norðfjarðar 7.apríl 2011
Aðalfundur Sparisjóðs Norðfjarðar verður haldinn fimmtudaginn 7.apríl kl.18:00 í Nesskóla. Kosið verður til stjórnar. Jón Björn Hákonarson mun fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
7.
Ársfundur Loðnuvinnslunar 2011
Aðalfundur Loðnuvinnslunnar hf. verður haldinn föstudaginn 8.apríl kl.18:30 í Skrúð Fáskrúðsfirði. Bæjarstjóri mun fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
8.
Staðfesting á útsvarsprósentu við álagningu 2011
9.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 11 frá 7.mars lögð fram.