Fara í efni

Bæjarráð

240. fundur
5. apríl 2011 kl. 08:30 - 11:00
í þjónustumiðstöðinni í Neskaupstað
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson Stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Starfsendurhæfing Austurlands
Málsnúmer 1007144

Lagt fram bréf til bæjarstjóra frá formanni stjórnar StarfA vegna málefna StarfA frá 10.mars sl. Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi sem haldinn var á Reyðarfirði 31.mars sl. með formanni stjórnar og framkvæmdastjóra StarfA.  Auk þeirra á fundinum voru  Björn Ingimarsson bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri Hornafjarðar og Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Formaður StarfA mun á næstunni vera í sambandi við velferðarráðaneytið vegna málefna StarfA og er reiknað með að haldinn verður annar fundur með hópnum um miðjan apríl mánuð.  Bæjarráð Fjarðabyggðar vill hvetja ráðherra heilbrigðismála til að standa vörð um Starfendurhæfingu Austurlands og tryggja framtíð starfseminnar. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í þessari þjónustu á Austurlandi og mikilvægi hennar óumdeilt.  Bæjarstjóra falið að koma bókun bæjarráðs á framfæri við ráðherra velferðarmála.

2.
725 Mjóafjörður - Tilboð í hús
Málsnúmer 1103168
Mannvirkjastjóri var í símasambandi við fundinn. Kauptilboð, dagsett 25. mars 2011, frá Marvini Ómarssyni í íbúð Fjarðabyggðar í Mjóafirði við Þinghólsveg. Tilboðið er upp á 4,5 milljónir en fasteignamat íbúðarinnar er 5,42 milljónir. Verðmat frá fasteignasala liggur ekki fyrir. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti tilboðið með skilyrðum á fundi 28.mars.  Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 4.apríl. Bæjarráð hafnar kauptilboði en felur mannvirkjastjóra áframhaldandi vinnslu málsins. 
3.
Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði.
Málsnúmer 0903071
Mannvirkjastjóri var í símasambandi við fundinn. Tillaga Framkvæmdasýslu ríkisins frá 1.apríl og mannvirkjastjóra frá 4.apríl um töku tilboðs í snjóflóðavarnir í Tröllagili. Sex tilboð bárust í verkið. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Héraðsverks ehf. í verkið "Snjóflóðavarnir í Neskaupstað, varnargarðar og keilur" sem er í samræmi við ráðgjöf Framkvæmdasýslu ríkisins. Kostnaðarhlutdeild Fjarðabyggðar í verkefninu er 10%
4.
Ársuppgjör Fjarðabyggðar 2010
Málsnúmer 1103124
Áframhaldandi umræða um ársuppgjör 2010.
5.
Fundagerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2011
Málsnúmer 1103022
Fundargerð nr. 785 lögð fram til kynningar.
6.
AST - Fundargerð framkvæmdaráðs 17.3.2011
Málsnúmer 1104003
Fundargerð lögð fram til kynningar.
7.
Fundagerðir Skólaskrifstofu Austurlands árið 2011
Málsnúmer 1104004
Fundargerð frá 28.mars 2011 lögð fram til kynningar.
8.
Stuðningur og samstarf við Þekkingarnet Austurlands
Málsnúmer 1104010
Framlagt bréf frá formanni stjórnar Þekkingarnets Austurlands frá 17.mars. Bæjarstjóra falið að funda með formanni og framkvæmdastjóra ÞNA.
9.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011
Málsnúmer 1101153
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 9 frá 8.mars lögð fram.
10.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 17
Málsnúmer 1103013F
Fundargerð eigna,- skipulags- og umhverfisnefndar nr.17 frá 28.mars lögð fram.
Umræða um þjónustu Lyfju í Neskaupstað og á Reyðarfirði á laugardögum. Stjórnsýslustjóra falið að vinna að málinu áfram. Bæjarráð óskar Glímusambandi Íslands og Ungmennafélaginu Val Reyðarfirði til hamingju með glæsilega framkvæmd Íslandsglímunnar sem fram fór á Reyðarfirði 2.apríl.