Fara í efni

Bæjarráð

242. fundur
26. apríl 2011 kl. 15:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Ollíubirgðastöð í Reyðarfirði
Málsnúmer 2009-02-13-215
Þennan lið fundarins sátu formenn hafnarstjórnar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, framkvæmdastjóri hafnanna auk Valgeirs Kjartanssonar og Hauks Óskarssonar frá Mannviti. Lagt fram bréf Mannvits frá 20.apríl er varðar beiðni Mannvits um áformayfirlýsingu milli Mannvits, Fjarðabyggðar og landeigenda Eyrar í Reyðarfirði um olíubirgðastöð í landi Eyrar.  Málinu vísað til umræðu í atvinnu- og menningarnefnd, hafnarstjórn og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Bæjarráð felur bæjarstjóra jafnframt að vinna að málinu áfram.  
2.
Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Málsnúmer 1103025
Bréf Skipulagsstofnunar frá 15.apríl, þar sem óskað er umsagnar Fjarðabyggðar fyrir 5.maí, um framleiðslu á 6.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði.  Vísað til umsagnar atvinnu- og menningarnefndar, hafnarstjórnar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.  Tekið fyrir á fundi bæjarráðs í næstu viku.  
3.
Ársuppgjör Fjarðabyggðar 2010
Málsnúmer 1103124
Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri og Magnús Jónsson endurskoðandi. Magnús fór yfir ársreikning Fjarðabyggðar fyrir árið 2010 og fylgigögn.  Bæjarráð vísar ársreikningi 2010 til fyrri umræðu í bæjarstjórn 5.maí. 
4.
725 Mjóafjörður - Tilboð í hús
Málsnúmer 1103168
Endurskoðað tilboð Marvins Ómarssonar í húseign við Þinghólsveg í Mjóafirði.  Einnig lagt fram bréf Sigfúsar Vilhjálmssonar frá 20.apríl og minnisblað mannvirkjastjóra frá 4.apríl.  Bæjarráð frestar afgreiðslu á tilboði Marvins og óskar eftir að mannvirkjastjóri komi á fund bæjarráðs til að fara yfir stefnu Fjarðabyggðar við sölu húsnæðis í eigu bæjarins.
5.
Umsókn í Rannsóknarsjóðinn 2011
Málsnúmer 1103059
Fundargerð frá 7.apríl og minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa frá 13.apríl er varðar framlag í rannsóknarsjóð Fjarðabyggðar og Landsbankans.  Bæjarráð samþykkir að greiða 150.000 kr. í sjóðinn sem takist af liðnum 21-69- Um er að ræða framlag til sjóðsins vegna ársins 2009.  Jafnframt samþykkir bæjarráð að gera ráð fyrir framlögum í sjóðinn á fjárhagsáætlun 2012.
6.
Franskasafnið á Fáskrúðsfirði sumarið 2011
Málsnúmer 1104080
Minnisblað stjórnsýslustjóra og ferða- og menningarfulltrúa frá 18.apríl.  Bæjarráð felur ferða- og menningarfulltrúa afgreiðslu málsins samkvæmt tillögu í minnisblaði.
7.
Upplýsingamiðstöð á Stöðvarfirði
Málsnúmer 1007205
Bæjarráð samþykkir samning við Ástrós ehf. um upplýsingamiðstöð á Stöðvarfirði og felur bæjarstjóra undirritun hans.
8.
Sumarlokun sundlaugarinnar á Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 1104129
Bréf sunddeildar Leiknis frá 15.apríl og minnisblað fræðslustjóra.  Bæjarráð sammála um að breyta ekki ákvörðun um sumarlokun sundlaugar á Fáskrúðsfirði en samþykkir að heimila fræðslu- og frístundasviði að bjóða upp á akstur barna í sund fram að unglingalandsmóti, í tengslum við akstur á knattspyrnuæfingar í Fjarðabyggðarhöllina. Kostnaður sem er um kr. 400.000 takist af málaflokki æskulýðs- og íþróttamála.
9.
Björgunarklippur
Málsnúmer 1104103
Minnisblað slökkviliðsstjóra frá 7.apríl er varðar breytingar á lögum um brunavarnir en með breytingunum er björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum, með sérhæfðum björgunarbúnaði, orðið eitt af verkefnum slökkviliða.  Þessi breyting kallar á kaup á björgunarklippibúnaði en löggjafinn gerði ekki ráð fyrir að fjármagn fylgdi með breytingum á lögunum, þrátt fyrir athugasemdir og ábendingar Sambands íslenskra sveitarfélaga í umsögn um frumvarp til laganna.  Vísað til umræðu við fjárhagsáætlunargerð 2012.
10.
Fjarskiptamál á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði
Málsnúmer 1012114
Lagðar fram upplýsingar um stöðu mála vegna tetrasambands í Fáskrúðsfjarðargöngum. Vegagerðin vinnur að undirbúningi Tetrasambands í Fáskrúðsfjarðargöngum á sama grunni og er í Bolungavíkurgöngum, með það fyrir augum að Neyðarlínan taki þátt í fjármögnun. Einnig eru í gangi viðræður við símafélögin um möguleika á að koma upp GSM sambandi í göngunum.
11.
Stjórnarfundir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2011
Málsnúmer 1104083
Fundargerð stjórnarfundar frá 22.mars sl. lögð fram til kynningar.  Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri mun taka sæti í varastjórn Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. á næstunni. Bæjarráð samþykkir að Gunnar Jónsson, staðgengill bæjarstjóra, taki sæti Páls sem stjórnarformaður í Lífeyrissjóði Neskaupstaðar.
12.
Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf
Málsnúmer 1104081
Bréf EFF frá 11.apríl er varðar fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Lagt fram til kynningar og fjármálastjóra falið að vinna áfram að málinu.
13.
Aðalfundarboð Fiskiræktar- og veiðfélags Norðfjarðar 23.apríl 2011
Málsnúmer 1104088
Aðalfundur Fiskiræktar- og veiðfélags Norðfjarðar var haldinn 23.apríl 2011 í Egilsbúð. Jón Björn Hákonarson var fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum.
14.
Kynningarfundur um landshlutaáætlun Austurlands 18.4.2011
Málsnúmer 1104082
Bæjarstjóri gerði grein fyrir kynningarfundi sem haldinn var 18.apríl.
15.
AST - Fundargerðir framkvæmdaráðs
Málsnúmer 1104003
Fundargerð nr. 5 frá 7.apríl lögð fram til kynningar.
16.
Fundarboð Lífeyrissjóðs Stapa - 12. maí
Málsnúmer 1104084
Ársfundur Lífeyrissjóðsins Stapa verður haldinn 12.maí í Skjólbrekku í Mývatnssveit.
17.
726. mál til umsagnar um frumvarp til sveitarstjórnarlaga
Málsnúmer 1104099
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18.apríl vegna frumvarps til sveitarstjórnarlaga. Umsagnarfrestur um frumvarpið er til 17.maí.  Stjórnsýslustjóra falið að fara yfir frumvarpið.
18.
Drög að frumvarpi nýrra sveitarstjórnarlaga
Málsnúmer 1101139
Bréf innanríkisráðuneytisins frá 8.apríl þar sem þakkað er fyrir umsögn vegna endurskoðunar á sveitarstjórnarlögum.
19.
Nýting frystihússins á Stöðvarfirði undir menningarstarfsemi
Málsnúmer 1008038
Farið yfir stöðu málsins. Tekið fyrir á næsta fundi.
20.
Útsending bæjarstjórnarfunda
Málsnúmer 1104160
Minnisblað mannauðsstjóra frá 20.apríl vegna tækjabúnaðar til útsendinga bæjarstjórnarfunda. Frestað til næsta fundar.
21.
Styrkur til blakdeildar Þróttar
Málsnúmer 1104163
Bæjarráð samþykkir að styrkja til blakdeild Þróttar um 450.000 kr. vegna glæsilegs árangurs kvennaliðs félagsins en liðið varð deildar-, bikar- og íslandsmeistari. Takist af liðnum óráðstafað.
22.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
Málsnúmer 1101152
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 12 frá 11.apríl lögð fram.
23.
Fræðslu- og frístundanefnd - 12
Málsnúmer 1104007F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 12 frá 13.apríl lögð fram.
24.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 19
Málsnúmer 1104006F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 19 frá 11.apríl lögð fram.
Með vísan til hádegisfrétta Ríkisútvarpsins laugardaginn 23.apríl sl. um álit Skipulagsstofnunar um Axarveg vill bæjarráð Fjarðabyggðar koma eftirfarandi á framfæri. Í viðtali sem fylgir umræddri frétt er fullyrt að Fjarðabyggð hafi unnið skemmdarverk með athugasemdum sínum. Þessu vísar bæjarráð Fja