Bæjarráð
243. fundur
3. maí 2011
kl.
08:30
-
11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
<DIV><DIV>Þennan lið fundarins sátu framkvæmdastjóri hafna og mannvirkjastjóri. Málið var til umfjöllunar á fundum í atvinnu- og menningarnefnd, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn 2.maí.  Fyrir liggur bréf Skipulagsstofnunar frá 15.apríl 2011 þar sem óskað er umsagnar Fjarðabyggðar, í samræmi við 6.gr. laga nr. 106/2000 m.s.b. og 11.gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum, hvort og á hvaða forsendum 6.000 tonna sjókvíaeldi á laxi í Reyðarfirði skuli háð mati á umhverfisáhrifum.  Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi umsögn til Skipulagsstofnunar. Jafnframt lögð fram drög að yfirlýsingu Laxa ehf. </DIV></DIV>
2.
Olíubirgðastöð í Reyðarfirði
Þennan lið fundarins sat framkvæmdastjóri hafna. Málið var til umfjöllunar á fundum í atvinnu- og menningarnefnd, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn 2.maí. Fjallað um umsagnir nefnda. Bæjarráð felur bæjarstjóra og framkvæmdastjóra hafna að afla frekari upplýsinga um verkefnið í samráði við Mannvit.
3.
Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði.
Bréf Ara Daníels Árnasonar frá 25.apríl er varðar spurningar og athugasemdir vegna framkvæmda við snjóflóðavarnir í Tröllagili.
Stefnt er á að halda kynningarfund um framkvæmdirnar í næstu viku. Bæjarráð felur mannvirkjastjóra að svara erindi.
4.
725 Mjóafjörður - Tilboð í hús
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Rætt um stefnu Fjarðabyggðar vegna sölu húsnæðis í eigu bæjarins Ákvörðun um sölu á húsnæði í Mjóafirði frestað til næsta fundar. Mannvirkjastjóra falið að ræða við tilboðsgjafa.
5.
Útsending bæjarstjórnarfunda
Minnisblað mannauðsstjóra frá 20.apríl er varðar endurnýjun á tækjabúnaði vegna útsendinga frá bæjarstjórnarfundum. Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði og felur mannauðsstjóra afgreiðslu. Kostnaður takist af liðnum 21-01-
6.
Afmæli Jóns Sigurðssonar
Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til að minnast þess að 17.júní 2011 eru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
7.
Umsókn til bæjarráðs um kaup á styrktarlínu
Beiðni um styrk vegna gerðar heimildarmyndarinnar "Norð Vestur - seinni hluti" er fjallar um náttúruhamfarir. Bæjarráð hafnar erindi.
8.
Austfirzk eining - Fundargerðir 2011
Fundargerð nr. 5 frá 26.apríl lögð fram til kynningar. Málefni Austfirskrar einingar rædd.
9.
Kynnisferð sveitarstjórnarmanna til Brussel 5.-9.júní 2011
Bréf sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27.apríl. Bæjarráð mun ekki senda fulltrúa í ferðina.
10.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011
11.
Fræðslu- og frístundanefnd - 13
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 13 frá 27.apríl lögð fram.
12.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 20
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 20 frá 2.maí lögð fram.
13.
Hafnarstjórn - 83
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 83 frá 2.maí lögð fram.
14.
Atvinnu- og menningarnefnd - 13
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 13 frá 2.maí lögð fram.