Fara í efni

Bæjarráð

244. fundur
11. maí 2011 kl. 08:30 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
725 Mjóafjörður - Tilboð í hús
Málsnúmer 1103168
Minnisblað fjármálastjóra frá 6.maí og áður framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 4.apríl.  Rætt um sölu húsnæðis í Mjóafirði.  Bæjarráð hafnar tilboði í Þinghólsveg 3 Mjóafirði, þar sem ekki er fjárheimild á fjárhagsáætlun 2011 til að greiða niður áhvílandi lán.  Sölu húsnæðis í Mjóafirði vísað til umræðu í fjárhagsáætlunarvinnu 2012.
2.
Afnot af aðstöðu í húsnæði eldri borgara á Stöðvarfirði fyrir bankaþjónustu
Málsnúmer 1012141
Bréf Landsbankans frá 27.apríl þar sem óskað er eftir áframhaldandi afnotum af húsnæði félags eldri borgara á Stöðvarfirði fyrir bankaþjónustu. Framlagt minnisblað stjórnsýslustjóra frá 11.maí. Bæjarráð samþykkir beiðni Landsbankans og felur mannvirkjastjóra að ganga frá áframhaldandi leigusamningi um afnot af húsnæði félags eldri borgara á Stöðvarfirði.
3.
Franskasafnið á Fáskrúðsfirði sumarið 2011
Málsnúmer 1104080
Umræða um framtíð safnsins.  Stjórnsýslustjóra falið að vinna frekar að málinu.
4.
17.júní 2011
Málsnúmer 1101041
Kostnaðaráætlun Ungmennafélagsins Vals frá 3.maí vegna framkvæmdar hátíðahalda 17.júní 2011.  Bæjarráð samþykkir kostnaðaráætlun ungmennafélagsins, felur ferða- og menningarfulltrúa útfærslu í samráði við Ungmennafélagið Val og að minnast sérstaklega þess að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar.  Bæjarráð vísar jafnframt framkvæmd 17.júní 2012 til frekari útfærslu í atvinnu- og menningarnefnd.
5.
Framkvæmdaráð SSA - Fundargerð 8.apríl 2011
Málsnúmer 1105017
Fundargerð frá 8.apríl lögð fram til kynningar.  Bæjarráð tekur undir ósk framkvæmdaráðs SSA um að ríkisstjórn Íslands fundi á Austurlandi með austfirskum sveitarstjórnarmönnum.
6.
Atvinnuleysistölur fyrir Austurland 2011
Málsnúmer 1101043
Samantekt á atvinnuástandi í Fjarðabyggð í febrúar og mars lögð fram til kynningar.
7.
Beiðni um heimild til ráðningar í afleysingarstarf á félagsþjónustusviði vegna málefna fatlaðs fólks 2011
Málsnúmer 1104166
Minnisblað félagsmálastjóra frá 26.apríl.  Bæjarráð heimilar ráðningu á félagsþjónustusvið samkvæmt minnisblaði og felur félagsmálastjóra að auglýsa starfið.
8.
Reglur um líkamsræktarstöðvar sem reknar eru af Fjarðabyggð
Málsnúmer 1101291
Bæjarstjórnarfundur 5.maí vísaði máli til bæjarráðs.  Rætt um fyrirkomulag á afslætti íþróttafélaga o.fl. í líkamsræktarstöðvunum. Bæjarráð vísar reglum um líkamsræktarstöðvar og viðmiðum, til frekari umræðu í fræðslu- og frístundanefnd, á grundvelli athugasemda sem bárust við vinnslu málsins.
9.
Stjórnarfundir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2011
Málsnúmer 1104083
Fundargerð stjórnarfundar 27.apríl lögð fram til kynningar.
10.
Austfirskar stoðstofnanir
Málsnúmer 1104003
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála er varðar vinnuhóp um Austfirskar stoðstofnarnir.
11.
Starfsendurhæfing Austurlands - framtíð starfsemi
Málsnúmer 1007144

Bréf formanns stjórnar StarfA frá 9.maí, til bæjarstjóra Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs, er varðar tillögu að tímabundinni lausn fyrir starfsemi StarfA.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Umræða um málið og því frestað.  Bæjarstjóra falið að skoða málið áfram og fjalla um á næsta fundi.
12.
Heimsókn Norðmanna um sjómannadagshelgina 5.-6.júní 2011
Málsnúmer 1105079

Rætt um fyrirkomulag heimsóknar frá Vesteralen í Noregi og móttöku bæjarstjórnar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

13.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011
Málsnúmer 1101153
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 12 frá 3.maí lögð fram.