Bæjarráð
245. fundur
17. maí 2011
kl.
08:30
-
11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Starfsendurhæfing Austurlands - framtíð starfsemi
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
2.
730 Fjarðabyggð, Ægisgata 6
Bréf Machinery ehf. frá 9.maí vegna Ægisgötu 6 Reyðarfirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd lagði til við bæjarráð á fundi 12.maí að mannvirkjastjóra verði falið að fylgja eftir fyrri ákvörðun um að byggingar sem heimilað var að risu árið 2005 verði fjarlægðar og færðar í fyrra horf. Bæjarráð er sammála ákvörðun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um að húsin víki, enda samræmast fyriráætlanir, sem raktar eru í bréfi Machinery, ekki aðalskipulagi og þeirri ásýnd sem mörkuð hefur verið með miðbæ Reyðarfjarðar.
3.
Endurfjármögnun lána 2011
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og fjármálastjóra að ganga til samninga við Íslandsbanka um skuldbreytingu lána sbr. greinargerð fjármálastjóra frá 16.maí. Um er að ræða tilfærslu erlendra lána að fjárhæð 893 miljónir króna yfir í íslenskar krónur. Skuldbreytingunni er vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2011 og til afgreiðslu bæjarstjórnar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
4.
Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði.
Lagður fram til kynningar verksamningur við Héraðsverk en tilboð í verkið var samþykkt í bæjarráði 5.apríl og staðfest í bæjarstjórn 14.apríl sl.
5.
Boðun á aðalfund Menningarráðs Austurlands 2011
Aðalfundur Menningarráðs Austurlands verður haldinn 14.júní á Djúpavogi. Kosið verður til stjórnar. Máli vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
6.
Samgönguáætlun og sóknaráætlanir landshluta
Samgönguþing verður haldið fimmtudaginn 19.maí í Reykjavík. Fulltrúa af mannvirkjasviði falið að sækja fundinn.
7.
AST - Fundargerðir framkvæmdaráðs
Lagðar fram til kynningar sjö fundargerðir vinnufunda framkvæmdaráðs AST ( Austfirskar stoðstofnanir ) frá 3.2.2011, 15.2.2011, 22.2.2011, 17.3.2011, 7.4.2011, 20.4.2011, 27.4.2011og þrjár fundargerðir vinnuhóps um verkefnið frá 16.11.2010, 26.1.2011 og 5.5.2011.
8.
Fundargerð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands frá 4.apríl 2011
Fundargerð frá 4.apríl lögð fram til kynningar. Í fundargerðinni er skorað á aðildarsveitarfélög að greiða framlag til sjóðsins.
9.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 21
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 21 frá 12.maí lögð fram.