Bæjarráð
Grenndarkynningu er lokið og barst ein athugasemd. Á fundi eigna- skipulags- og umhverfisnefndar Fjarðabyggðar 5.júlí 2010 féllst nefndin ekki á framkomna athugasemd, samþykkti framkvæmdina fyrir sitt leyti og vísaði afgreiðslu deiliskipulags til bæjarráðs. Bæjarráð, sem starfandi sveitarstjórn, samþykkir hér með framkvæmdina og það skipulag sem í henni felst. Mannvirkjastjóra falið að tilkynna þeim sem tjáðu sig um málið um niðurstöðuna. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Bæjarráð samþykkir að hækka sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar um 2,7 % frá og með 1. ágúst nk. Hækkun er tilkomin vegna hækkunar Landsvirkjunar á heildsölusamningum fyrirtækisins við Rafveitu Reyðarfjarðar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />