Bæjarráð
253. fundur
10. ágúst 2011
kl.
09:00
-
11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Ágangur vatns á lóð í Árdal.
Lögð fram umsögn mannvirkjastjóra frá 4.ágúst. Mannvirkjastjóra falið að svara erindinu og fara yfir varnir vegna ágangs vatns í Árdal.
2.
Fasteignamat 2012
Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá Þjóðskrá Íslands um fasteignamat 2012. Fjármálastjóra falið að greina upplýsingarnar nánar.
3.
Stofnfjáreigendafundur í Sparisjóð Norðfjarðar 18.ágúst 2011
Stofnfjáreigendafundur í Sparisjóð Norðfjarðar verður haldinn 18.ágúst kl. 17:00 í Nesskóla. Lagt fram til kynningar. Bæjarráð tilnefnir Jón Björn Hákonarson, forseta bæjarstjórnar, sem fulltrúa sveitarfélagsins.
4.
Skatepark á Eskifirði
Ódagsett bréf Brettafélags Austurlands, frá júlí 2011 auk kostnaðaráætlunar, þar sem óskað er eftir að Fjarðabyggð hugi að aðstöðu fyrir bretta- og hjólaíþróttir. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar og fjárhagsáætlunar 2012.
5.
Ráðstefna um eflingu lýðræðis hjá ríki og sveitarfélögum
Fyrir liggur ódagsett bréf frá Innanríkisráðuneytinu þar sem vakin er athygli á ráðstefnu um eflingu lýðræðis hjá ríki og sveitarfélögum sem fyrirhuguð er 14. september 2011. Stjórnsýslustjóra falið að kanna hvort mögulegt sé að ráðstefnan verði send út í gegnum fjarfundabúnað.
6.
Starfshópur um almenningssamgöngur á Austurlandi 2011
Fundargerð frá 30.júní lögð fram til kynningar.
7.
Drög að reglum um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til eflingar tónlistarnáms og jöfnunar á aðstöðumun nemenda
Drög að reglum og samkomulag, milli ríkissjóðs og sambands sveitarfélaga, lagt fram til kynningar og vísað til fræðslustjóra.
8.
Fundargerðir framkvæmdaráðs SSA - 2011
Fundargerð frá 25.júlí lögð fram til kynningar.
9.
Fjárhagsáætlun 2012
Lögð eru fram til kynningar drög að dagsetningum í fjarhagsáætlunarferli og drög að ferli og framsetningu hennar. Tekið fyrir á næsta fundi.
10.
Vinna við sóknaráætlun; Verkefnin 5 - 7
Lagður er fram til kynningar tölvupóstur frá framkvæmdastjóra SSA þar sem kynnt er vinna við sóknaráætlun. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.