Fara í efni

Bæjarráð

254. fundur
16. ágúst 2011 kl. 08:30 - 12:00
í þjónustumiðstöðinni í Neskaupstað
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Fjármál 2011
Málsnúmer 1108048
Þennan dagskrárlið sat Björgvin Valdimarsson fjármálastjóri og kynnti hann frávikagreiningu fyrir sveitarsjóð fyrstu sex mánuði ársins.  Jafnframt mættu á fundinn fræðslustjóri og slökkviliðsstjóri og fóru þeir yfir frávik í rekstri sinna málaflokka.
2.
Gerð skýrslu um áhrif í Fjarðabyggð vegna tillagna að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Málsnúmer 1106101
Þennan dagskrárlið fundar sátu Flosi Eiríksson og Sigurjón Örn Arnarson frá KPMG og kynntu þeir drög að skýrslu um áhrif minna kvótafrumvarpsins á Fjarðabyggð. 
3.
Aðalfundur SSA 2011
Málsnúmer 1108012
Aðalfundurinn haldinn að Hallormsstað 30. september og 1. október n.k.  Fram lagt og kynnt.
4.
Gjaldskrá fyrir ótryggða orku
Málsnúmer 1108013
Bæjarráð samþykkir tillögu um hækkun.
5.
Breyting á gjaldskrá fjarvarmaveitu
Málsnúmer 1108005
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.  Farið yfir tillögu að hækkun gjaldskrár.
Bæjarráð samþykkir tillögu um hækkun.
6.
Þakviðgerðir á Nesbakka 1-11 740
Málsnúmer 1108034
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu í minnisblaði og vísar tillögunni til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
7.
Íþrótta- og skólaakstur 2011
Málsnúmer 1011111
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.
Bæjarráð samþykkir að gjaldskrá fyrir skólaakstur í Verkmenntaskóla Austurlands verði óbreytt fram til 31.12.2011
8.
Jarðhitaleit í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1011112
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.
Farið yfir stöðu jarðhitaleitar í Fjarðabyggð og verksamning um jarðhitaleit. 
Bæjarráð samþykkir verksamninginn.
 
9.
Bréf frá formanni íþróttafélgsins Þróttar, Neskaupstað
Málsnúmer 1108053
Bréf lagt fram til kynningar en það fjallar um ýmsar úrbætur vegna aðstöðumála.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til umfjöllunar fræðslu- og frístundanefndar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar í tengslum við gerð fjárhagsáætlana.
10.
Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
Málsnúmer 0903017
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.
Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að heimila Framkvæmdasýslu ríkisins fyrir hönd Velferðarráðuneytisins og Fjarðabyggðar að bjóða út byggingu á nýju hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð, staðsett að Dalbraut 1 á Eskifirði.  Ráðgert er að hefja framkvæmdir haustið 2011 og að þeim ljúki vor / sumar 2013.
Jafnframt er mannvirkjastjóra heimilað að vinna að lóðarmálum til samræmis við minnisblað um lóðarmál fyrir hjúkrunarheimilið.
11.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 24
Málsnúmer 1108003F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd nr. 24 frá 10. ágúst s.l. staðfest.
12.
Hafnarstjórn - 86
Málsnúmer 1107004F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 86 frá 20. júlí s.l. staðfest.
Boðað verkfall leikskólakennara. Farið yfir stöðu í kjaraviðræðum Félags leikskólakennara og Samninganefndar sveitarfélaga. Bæjarstjóra er falið að hefja undirbúning að viðbrögðum við verkfallinu. Málefni Sparisjóðs Norðfjarðar rædd. Lokaskýrsla AST vinnuhóps SSA um endurskoðun á stoðkerfi atvinnu