Fara í efni

Bæjarráð

257. fundur
29. ágúst 2011 kl. 08:30 - 11:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Austfirsk eining - Fundargerðir 2011
Málsnúmer 1104025
Fundargerð Austfirskrar einingar nr. 8 frá 15.ágúst lögð fram til kynningar.
2.
Framlög til starfsemi Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands árið 2012
Málsnúmer 1108114
Lagt fram bréf frá Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands vegna fjárhagsstuðnings á árinu 2012. Vísað til skoðunar fræðslu- og frístundanefndar í tengslum við fjárhagasáætlunargerð 2012.
3.
Tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Samráðs- og kynningarferli
Málsnúmer 1108094
Lagt fram bréf iðnaðarráðuneytisins frá 19.ágúst er varðar samráðs- og kynningarferli vegna tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Vísað til eigna-, skipulags og umhverfisnefndar til umfjöllunar og skoðunar hjá mannvirkjastjóra.
4.
Vinna við sóknaráætlun 20/20 - Verkefnin 5 - 7
Málsnúmer 1108028
Erindi frá SSA þar sem óskað er eftir tillögum frá sveitarfélögum vegna fjárfestingarverkefna á Austurlandi.  Farið yfir ýmsar hugmyndir að fjárfestingarverkefnum í tengslum við sóknaráætlun 20/20.   Stjórnsýslustjóra falið að vinna málið áfram og koma hugmyndum á framfæri við SSA.  Atvinnu- og menningarnefnd verði jafnframt kynntar hugmyndirnar.
5.
Hluthafafundur í Fjarðaferðum
Málsnúmer 1108089
Bæjarstjóri fór yfir niðurstöður hluthafafundar Fjarðaferða sem haldinn var 24.ágúst um niðurfærslu og aukningu hlutafjár.  Vísað er til gagna sem lögð voru fram á fundinum af Páli Kr. Pálssyni stjórnarformanni.  Bæjarráð staðfestir niðurstöðu hluthafafundar um að hlutafé Fjarðaferða verði fært niður um 60% og veitir jafnframt heimild til að hlutafé félagsins verði aukið á ný.
6.
Forvarnarmál - Tóbak
Málsnúmer 1108085
Bréf Ungmennafélags Íslands frá 15.ágúst er varðar kostnaðarþátttöku sveitarfélaga vegna gerðar skiltis í tengslum við forvarnir vegna síaukinnar neyslu ungs fólks á munntóbaki. Vísað til félagsmálanefndar til ákvörðunartöku og til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.
7.
Könnun á leiguíbúðum sveitarfélaga
Málsnúmer 1108125
Lögð fram til kynningar skýrsla Varasjóðs húsnæðismála vegna könnunar á leiguíbúðum sveitarfélaga 2010. Skýrslunni vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
8.
Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Fasteignar
Málsnúmer 1107046
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Farið var yfir efni aðalfundar sem haldinn var 9.ágúst.  Lagður fram ársreikningur eignarhaldsfélagsins vegna ársins 2010.
9.
Fjárhagsáætlun 2012
Málsnúmer 1108029
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og lagði fram drög að tekjuáætlun og fjárhagsrömmum málaflokka 2012.  Úthlutun fjárhagsramma verður tekin á næsta fundi.
10.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 25
Málsnúmer 1108009F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 25 frá 22.ágúst lögð fram.
Rætt um grútarmengun sem átti sér stað í Neskaupstað laugardaginn 27.ágúst og viðbrögð við henni. Kynning á skýrslu um Austfirskar stoðstofnanir verður haldinn í kjölfar bæjarstjórnar nk. fimmtudag á Reyðarfirði. Fundur með þingmönnum Norðausturkjördæmis verður haldinn miðvikudaginn 31.ágúst kl.