Fara í efni

Bæjarráð

259. fundur
12. september 2011 kl. 08:30 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Ágangur vatns á lóð í Árdal
Málsnúmer 1107061
Bréf Elsu Þórisdóttur og Jóns Björns Hlöðverssonar frá 3.september, sem ritað er í framhaldi af svarbréfi mannvirkjastjóra frá 25.ágúst, vegna ágangs vatns á lóðinni að Árdal 19 Eskifirði. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til afgreiðslu.
2.
Golfklúbbur Norðfjarðar - Beiðni um framlengingu á samningi
Málsnúmer 1109041
Beiðni Golfklúbbs Norðfjarðar um framlengingu á uppbyggingarsamningi vegna Grænanesvallar.  Rætt almennt um styrkveitingar til íþróttafélaga. Beiðni golfklúbbsins vísað til fræðslu- og frístundanefndar. Málið aftur á dagskrá bæjarráðs í október í tengslum við fjárhagsáætlun 2012.
3.
Rekstur Héraðsskjalasafns Austfirðinga og drög að fjárhagsáætlun 2012
Málsnúmer 1109048
Bréf Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 6.september þar sem óskað er eftir auknu framlagi til safnsins frá aðildarsveitarfélögum á árinu 2012.  Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi sem hann átti nýlega með forstöðumanni safnsins, formanni stjórnar og bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs. Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2012.
4.
Uppgjör vegna útgöngu Skeggjastaðahrepps og Hornafjarðar úr SSA
Málsnúmer 1109061
Tillaga SSA um uppgjör vegna útgöngu Skeggjastaðahrepps og Hornafjarðar úr SSA. Vísað til fjármálastjóra með beiðni um álit sem lagt verði fyrir næsta fund bæjarráðs.
5.
Hluthafafundur í Fjarðaferðum
Málsnúmer 1108089
Erindi Fjarðaferða frá 8.september þar sem Fjarðabyggð er boðið að auka hlutafé sitt um 6,9%. Bæjarráð mun ekki auka hlutafé sitt í Fjarðaferðum en Fjarðabyggð mun áfram leggja Fjarðaferðum lið eins og kostur er.
6.
Hvatning velferðarvaktarinnar í upphafi skólaárs
Málsnúmer 1109022
Bréf frá 1.september þar sem sveitarfélög eru hvött til að standa vörð um góða líðan barna og gæta að verði á skólamáltíðum. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.
7.
Ungmennaráð sveitarfélaga
Málsnúmer 1109072
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 5.september er varðar ungmennaráð. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.
8.
Ráðstefna um eflingu lýðræðis hjá ríki og sveitarfélögum
Málsnúmer 1107079
Ráðstefna um eflingu lýðræðis hjá ríki og sveitarfélögum, sem haldin verður 14.september í Ráðhúsi Reykjavíkur, verður í beinni útsendingu á netinu.  Stjórnsýslustjóra falið að hvetja bæjarfulltrúa til að fylgjast með ráðstefnunni á netinu.
9.
Bókun frá Menningarráði Austurlands
Málsnúmer 1109060
Bókun stjórnar Menningarráðs Austurlands frá 7.september lögð fram til kynningar "Á erfiðum tímum og með vísan til fjárhagslegs aðhalds í rekstri margra sveitarfélaga vill Menningarráð Austurlands vekja athygli á því að mikilvægt er að varðveita störf á sviði menningar og lista inn í sveitarfélögunum sem og stofnunum á vegum sveitarfélaga. Menningarsamningur milli ríkis og sveitarfélaga gengur út frá eflingu og aukinni atvinnusköpun á sviði lista og menningar. Mikilvægt er að við samninginn sé staðið hvað þetta varðar og störfum á Austurlandi í þessum málaflokki fjölgi"
10.
Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 2011
Málsnúmer 1105100
Fundargerð frá 1.september 2011 lögð fram til kynningar. Stjórnsýslustjóri gerði grein fyrir efni fundarins.
11.
Bréf frá sunddeild Leiknis - lokun sundlaugar 2012
Málsnúmer 1104110
Bréf sunddeildar Leiknis frá 8.september er varðar lokanir sundlaugarinnar á Fáskrúðsfirði á árinu 2012.  Vísað til fræðslu- og frístundanefndar í tengslum við starfs- og fjárhagsáætlun 2012.
12.
Umgengni á moldartökusvæði fyrir ofan Snæfell á Reyðarfirði
Málsnúmer 1109089
Bréf Ólafs H. Ólafssonar og Marcelu Rodiguez Zaenz frá 9.september er varðar umgengni á moldartökusvæði fyrir ofan Snæfell á Reyðarfirði. Vísað til mannvirkjastjóra til afgreiðslu.
13.
Fræðslu- og frístundanefnd - 16
Málsnúmer 1109002F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 16 frá 7.september lögð fram.
14.
Atvinnu- og menningarnefnd - 17
Málsnúmer 1107003F
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 17 frá 8.september 2011 lögð fram.
15.
Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 1104080
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála vegna uppbyggingar við Franska spítalann.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi sem hann átti vegna málefna Breiðabliks í Neskaupstað.