Fara í efni

Bæjarráð

260. fundur
19. september 2011 kl. 08:30 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Uppgjör vegna útgöngu Skeggjastaðahrepps og Hornafjarðar úr SSA
Málsnúmer 1109061

Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur fjallað um erindi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) vegna uppgjörs við Skeggjastaðahrepp og sveitarfélagið Hornafjörð vegna úrgöngu þeirra úr SSA. Í uppgjörinu kemur fram að bæði sveitarfélögin greiða SSA hlutfallslega miðað við íbúafjölda í lok útgönguárs að teknu tilliti til peningalegra eigna, annars vegar og skulda og reiknaðra skuldbindinga hins vegar. Heildarfjárhæðin sem kemur til greiðslu samkvæmt samkomulaginu er kr. 3.907.939.-  Reiknaðar lífeyrisskuldbindingar SSA í árslok 2010 eru um 52 m. kr. og peningalegar eignir eru um 30 m. kr. Aðildarfélög SSA bera hlutfallslega bakábyrgð á skuldum SSA.  Bæjarráð samþykkir uppgjörið fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að undirrita samkomulag þar að lútandi.

2.
Lögfræðikostnaður 2010-2011
Málsnúmer 1109091
<DIV><DIV>Framlagt minnisblað fjármálastjóra frá 12.september, vegna óformlegrar fyrirspurnar Elvars Jónssonar, er varðar lögfræðikostnað á árunum 2010 og 2011.  Kostnaður á árinu 2010 var um 3,5 m.kr. og er um 1,4 m.kr. það sem af er árinu 2011. </DIV></DIV>
3.
Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands 2011
Málsnúmer 1105180
Fundargerð frá 1.september 2011 lögð fram til kynningar
4.
Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2011
Málsnúmer 1107058
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar SSA frá 6.september og 9.september og fundargerð framkvæmdaráðs SSA frá 9.september.
5.
Lausagangur fjár á Eskifirði
Málsnúmer 1109107
Fyrirspurn Árna Helgasonar er varðar lausagöngu fjár á Eskifirði. Vísað til landbúnaðarnefndar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar með ósk um að unnin verði kostnaðaráætlun um fjárgirðingar í þéttbýli í Fjarðabyggð. Bæjarráð óskar einnig eftir upplýsingum frá mannvirkjasviði um hvað líði vinnu við flutning sauðfjárveikivarnarlínu. Mannvirkjastjóra falið að svara fyrirspurn Árna.
6.
Málþing - Sjálfbær sveitarfélög - 13.október n.k.
Málsnúmer 1109110
Upplýsingar um málþing um sjálfbær sveitarfélög er haldið verður á Selfossi 13.október.  Bæjarstjóra falið að senda fulltrúa á málþingið.
7.
Starfshópur um almenningssamgöngur á Austurlandi 2011
Málsnúmer 1106107
Lögð fram til kynningar fundargerð frá fundi sem haldinn var nýlega vegna flutnings á sérleyfi til landshlutasamtaka um næstu áramót.
8.
Aðgerðaráætlun sveitarfélaga um aðgerðir gegn ofbeldi gegn konum
Málsnúmer 1109116
Bréf velferðarráðuneytisins frá 9.september er varðar gerð aðgerðaáætlana um aðgerðir gegn ofbeldi gegn konum. Vísað til félagsmálanefndar.
9.
Styrkur til KFF 2012
Málsnúmer 1109142
Beiðni Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar um fyrirframgreiðslu á styrk vegna ársins 2012 vegna mikils ferðakostnaðar á nýafstöðnu keppnistímabili.  Fyrir liggur kostnaðaráætlun vegna ársins 2012. Bæjarráð samþykkir beiðni og vísar beiðni til afgreiðslu bæjarstjóra.
10.
Beiðni um lóð undir atvinnustarfsemi
Málsnúmer 1109015
Bréf ALUCAB ehf. frá 16.september en í bréfinu er sótt um lóðina nr. 14 við Mjóeyrarhöfn.  Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar með beiðni um umsögn til bæjarráðs.
11.
Umsókn um undirbúning og framkvæmd 2. landsmóts UMFÍ 50
Málsnúmer 1107099
Bréf UMFÍ frá 14.september þar sem Fjarðabyggð og UÍA er boðið að fylgja eftir og kynna, á stjórnarfundi UMFÍ 26.september nk., umsókn um landsmót 50 ára og eldri.  Bæjarráð felur fræðslustjóra og bæjarstjóra að sækja fundinn.
12.
Sameining Austfirskra stoðstofnana (AST) - fundargerðir og skýrsla
Málsnúmer 1104003
Fundargerð um sameiningu Austfirskra stoðstofnana nr. 6 frá 13.september lögð fram til kynningar.
13.
Fjármál 2011
Málsnúmer 1108048
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir rekstur og stöðu vegna fyrstu sex mánaða ársins 2011 vegna beiðni Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga.
14.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
Málsnúmer 1101152
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 19 frá 12.september lögð fram.
15.
Hafnarstjórn - 88
Málsnúmer 1109007F
Fundargerð hafnarstjórnar nr.88 frá 13.september lögð fram.
16.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 26
Málsnúmer 1109006F
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr.26 frá 12.september lögð fram.