Fara í efni

Bæjarráð

262. fundur
10. október 2011 kl. 08:30 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Beiðni um framlengingu á uppbyggingarstyrk
Málsnúmer 1110011
Ódagsett bréf Golfklúbbsins Byggðarholts þar sem óskað er eftir framlengingu á uppbyggingarstyrk. Á dagskrá fræðslu- og frístundanefndar 5.október í tengslum við fjárhagsáætlunargerð. Vísað til fjárhagsáætlunar en gerð langtímasamnings, um afnot af golfvallarsvæðinu, vísað til bæjarstjóra.
2.
Viðtöl þingmannaviku 2011
Málsnúmer 1110019
Heimsókn og viðtöl þingmanna Norðausturkjördæmis við sveitarstjórn Fjarðabyggðar er áætluð mánudaginn 24.október frá kl. 16:30. Vísað til skipulagningar hjá stjórnsýslustjóra.
3.
Hvatning vegna kvennafrídagsins 25.okóber nk.
Málsnúmer 1110017
Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélögin til að standa fyrir fundum vikuna 24.-29.október um stöðu og aðgerðir í jafnréttismálum kynjanna. Vísað til félagsmálastjóra og stjórnsýslustjóra til frekari skoðunar.
4.
Árgjöld sveitarfélaga til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Málsnúmer 1009205
Bæjarráð sammála um að greiða eftirstöðvar á framlagi til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands. Takist af liðnum óráðstafað.
5.
Lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila
Málsnúmer 1110040
Minnisblað mannauðsstjóra frá 6.október um lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimilanna Uppsala og Hulduhliðar og umboð til Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Bæjarráð samþykkir að veita Samtökum fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu umboð til að koma fram fyrir hönd hjúkrunarheimilanna í samningaviðræðum vegna uppgjörs lífeyrisskuldbindinga.  Bæjarráð felur mannauðsstjóra jafnframt frekari úrvinnslu málsins.
6.
Styrkbeiðni Hjálpræðishersins
Málsnúmer 1110047
Bæjarráð samþykkir að styrkja starf Hjálpræðishersins um 150.000 kr. Takist af liðnum óráðstafað.
7.
Aðalfundur SSA 2011
Málsnúmer 1108012
Fundargerð aðalfundar SSA 2011 lögð fram til kynningar.
8.
Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2011
Málsnúmer 1107058
Fundargerðir stjórnar SSA frá 29.september og 1.október 2011 lagðar fram til kynningar.
9.
Líkamsræktarkort.
Málsnúmer 2009-01-06-18
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að atvinnuleitendur njóti sömu kjara og elli- og örorkulífeyrisþegar, á mánaðarkortum í líkamsrækt. Vísað til endanlegrar afgreiðslu og útfærslu hjá fræðslu- og frístundanefnd.
10.
Starfsaldursmat samkvæmt kjarasamningum.
Málsnúmer 1110049
Minnisblað mannauðsstjóra frá 7.október um mat á starfsaldri starfsmanna.  Bæjarráð samþykkir tillögu um að frestur til að skila inn gögnum verði lengdur til 31.okótber nk. og skili starfsmenn vottorðum inn fyrir þann tíma geti þeir fengið afturvirka hækkun til 1.maí sl.
11.
Aukaaðalfundur Markaðsstofu Austurlands 2011
Málsnúmer 1110052
Bæjarráð sammála um að formaður atvinnu- og menningarnefndar verði fulltrúi Fjarðabyggðar á aukaaðalfundi Markaðsstofu Austurlands sem haldinn verður 21.október.
12.
Fundur sveitarstjórnar með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2011
Málsnúmer 1110050
Bréf Alþingis frá 5.október er varðar upplýsingar um fundi sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis. Stjórnsýslustjóra falið að koma á fjarfundi 12.október. 
13.
Fjárhagsáætlun 2012
Málsnúmer 1108029
Framkvæmdastjóri hafnanna, formaður hafnarstjórnar, stjórnsýslustjóri, félagsmálastjóri og formaður félagsmálanefndar gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2012.
14.
Hafnarstjórn - 89
Málsnúmer 1109016F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 89 frá 4.október lögð fram.
15.
Fræðslu- og frístundanefnd - 17
Málsnúmer 1110001F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 17 frá 5.október lögð fram.