Bæjarráð
263. fundur
11. október 2011
kl.
17:30
-
21:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2012
Inn á fundinn komu mannvirkjastjóri, formaður eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, fræðslustjóri og formaður fræðslu- og frístundanefndar og ræddu fjárhagsáætlun málaflokka. Auk þess sátu þennan fundarlið mannauðsstjóri og fjármálastjóri.
2.
Beiðni um lóð undir atvinnustarfsemi
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Á fundi bæjarráðs 19.september óskaði ráðið eftir umsögn eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar vegna lóðarumsóknar ALUCAB ehf. um lóðina nr. 14 að Hrauni. Á fundi eigna,- skipulags- og umhverfisnefndar 10.október var tekin fyrir umsögn mannvirkjastjóra, hún samþykkt og henni jafnframt vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir að úthluta ALUCAB ehf. lóðinni nr. 14 að Hrauni og vísar erindinu til áframhaldandi vinnslu hjá mannvirkjastjóra og framkvæmdastjóra hafnanna.
3.
Sameining Austfirskra stoðstofnana (AST) - fundargerðir og skýrsla
Fundargerð símafundar frá 7.október 2011, vegna sameiningar stoðstofnana, hjá fulltrúum stoðkerfisins í starfshóps AST-verkefnisins
4.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 28
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 28 frá 10.október lögð fram.