Fara í efni

Bæjarráð

267. fundur
14. nóvember 2011 kl. 08:30 - 12:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2012
Málsnúmer 1108029

Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Lagðar fram tillögur að állagningarstofnum fasteignagjalda 2012 og drög að þriggja ára áætlun. Tekið fyrir á næsta fundi.

2.
Fjárhagsáætlun 2012 - Fræðslu,- og frístundanefnd
Málsnúmer 1108059
Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins. Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundamála. Fræðslu- og frístundanefnd telur að ekki verði lengra komist með hagræðingaraðgerðir í fræðslu- og frístundamálum og fjárhagsramma þurfi að hækka um 17 milljónir til að hægt verði að ganga frá fjárhagsáætlun.  Bæjarráð samþykkir hækkun á fjárhagsramma.
3.
Fjárhagsáætlun 2012 - Atvinnu- og menningarnefnd
Málsnúmer 1108057
Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun atvinnu- og menningarmála. Atvinnu- og menningarnefnd telur að vegna kostnaðarliða sem stofnað hefur verið til á árinu verði að hækka fjárhagsramma um 8 milljónir til að hægt verði að ganga frá fjárhagsáætlun.  Bæjarráð samþykkir hækkun á fjárhagsramma.
4.
Fjárhagsáætlun 2012 - Hafnarnefnd
Málsnúmer 1108058
Framkvæmdastjóri hafnanna sat þennan lið fundarins. Lögð fram rekstrar- og fjárfestingaráætlun 2012 auk þriggja ára áætlunar.  Gjaldskrá hafnarsjóðs tekin fyrir á næsta fundi.  Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
5.
Fjárhagsáætlun 2012 - Félagsmálanefnd
Málsnúmer 1108056
Fjárhagsáætlun félagsmálanefndar vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
6.
Fjárhagsáætlun 2012 - Bæjarráð og sameiginlegur kostnaður
Málsnúmer 1108060
Slökkviliðsstjóri sat þennan lið fundarins. Umræða um fjárhagsramma Slökkviliðs Fjarðabyggðar. Ákvörðun frestað til næsta fundar.
7.
Fjárhagsáætlun 2012 - Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Málsnúmer 1108055
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir fjárfestingaáætlun fyrir næstu þrjú ár. Bæjarráð samþykkir framlagða fjárfestingaáætlun og starfsáætlun mannvirkja- og umhverfissviðs. Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra og fjármálastjóra er varðar bílakaup fyrir árið 2012. Fjárhagsáætlun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
8.
Útsvar 2012
Málsnúmer 1111039

Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkir að vísa til bæjarstjórnar tillögu um að álagningarhlutfall útsvars verði 14,48% af tekjum einstaklinga í Fjarðabyggð. Útsvarsheimild sveitarfélagsins yrði þannig fullnýtt.

9.
Gjaldskrá fyrir hunda- og kattaleyfi 2012
Málsnúmer 1110132

Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá fyrir hunda- og kattarleyfi í Fjarðabyggð verði óbreytt á milli ára, þ.e. leyfi fyrir hund verði 14.500 kr. og fyrir kött verði 9.500 kr. á árinu 2012. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

10.
Gjaldskrá Fráveitu Fjarðabyggðar 2012
Málsnúmer 1110131

Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá fyrir Fráveitu Fjarðabyggðar. Gjaldskrá stofngjalds fráveitu hækkar um 8% og gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa um  48%. Báðar hækkanir taka mið af breytingu á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun gjaldskrár. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012.

11.
Gjaldskrá fyrir gatnagerðagjöld 2012
Málsnúmer 1110130

Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá gatnagerðargjalda. Gjaldskráin hækkar um 8% eða sem nemur breytingu á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun. Jafnframt samþykkir bæjarráð tillögu mannvirkjastjóra að gefinn verði 50% afsláttur á gatnagerðagjöldum fyrir íbúðarhúsnæði á árinu 2012. Lagt er til að eftirfarandi skilyrði séu fyrir veitingu á afslætti:

1. lóðarumsókn sé í skipulögðu hverfi.

2. lokið hafi verið við lagningu allra heimæða og að yfirborð götu sé malbikað.

3. að byggingarframkvæmdir hefjist á árinu 2012.

4. að umsækjandi sé skuldlaus við sveitarfélagið.

<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012.

 

12.
Gjaldskrá fyrir Vatnsveitu Fjarðabyggðar 2012
Málsnúmer 1110129

Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá Vatnsveitu Fjarðabyggðar um 8% þ.e. sem nemur breytingu á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun á gjaldskrá. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

13.
Gjaldskrá fyrir framkvæmdarleyfi 2012
Málsnúmer 1110128

Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá vegna framkvæmdaleyfa og þjónustugjalda skipulagsfulltrúa. Gjaldskrá hækkar um 8%, þ.e. sem nemur hækkun á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun gjaldskrár. Auk þess er verið að setja inn nýja gjaldliði í gjaldskrá í samræmi við 20. gr. nýrra skipulagslaga nr. 123/2010. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

14.
Gjaldskrá fyrir byggingarleyfi 2012
Málsnúmer 1110127

Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjalda byggingafulltrúa Fjarðabyggðar. Gjaldskrá hækkar almennt um 8%, sem er í samræmi við breytingu á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun gjaldskrár. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

15.
Gjaldskrá Sorpmiðstöðvar Fjarðabyggðar 2012
Málsnúmer 1110126

Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá Sorpstöðvar Fjarðabyggðar vegna söfnunar- og móttökustöðvar og urðunarstaðs um vísitöluhækkun á árinu 2011. Auk þess er lagt til að hækka gjaldskrá aukalega um 3% vegna áætlaðrar meðaltals hækkunar á vísitölu næsta árs. Einnig er lagt til að gjald vegna sorphreinsunar- og förgunargjalda verði lækkað um 2.278 kr á ári. Ný gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

16.
Gjaldskrá í íþrótta- og skólamannvirkjum 2012
Málsnúmer 1111023
Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins og gerði grein fyrir hækkunum á gjaldskrám íþrótta- og skólamannvirkja. Ákvörðun um breytingar á gjaldskrá sundlauga frestað til næsta fundar. Bæjarráð samþykkir breytingar á öðrum gjaldskrám íþrótta- og skólamannvirkja. Meðal hækkana má nefna að gjaldskrá leikskóla hækkar um 8%, skólamáltíðir um 5% og fullt nám í tónlistarskóla um 10% 
17.
Breytingar á gjaldskrám safna og bókasafna 1.1.2012
Málsnúmer 1110169
Bæjarráð samþykkir tillögu forstöðumanns Safnastofnunar að breytingum á gjaldskrá safnanna í Fjarðabyggð og samþykkir jafnframt að hækka gjaldskrá bókasafnanna um 10% 
18.
Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands 2011
Málsnúmer 1105180
Fundargerð stjórnarfundar Þróunarfélags Austurlands frá 1.nóvember lögð fram til kynningar.
19.
Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 2011
Málsnúmer 1105100
Fundargerð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands frá 8.nóvember lögð fram til kynningar.
20.
Manntal 2011
Málsnúmer 1111018
Bréf Hagstofu Íslands frá 2.nóvember þar sem tilkynnt er um töku manntals og húsnæðistals í árslok 2011. Óskað verður eftir viðbótarupplýsingum frá sveitarfélögum vegna vinnu við manntalið.  Lagt fram til kynningar.
21.
Skil á fjárhagsupplýsingum
Málsnúmer 1111043
Tölvupóstur innanríkisráðuneytisins frá 7.nóvember þar sem áréttuð eru skil á fjárhagslegum upplýsingum. Lagt fram til kynningar.
22.
Kynningarfundur um evrópsk byggðamál á Reyðarfirði 21. nóvember 2011
Málsnúmer 1111044
Framlögð dagskrá kynningarfundar um evrópsk byggðamál sem haldinn verður á Reyðarfirði 21.nóvember 2011 kl.14:00.  Bæjarfulltrúar hvattir til að sækja fundinn eigi þeir þess kost.
23.
Eignarhaldsfélagið Fasteign - hluthafafundur 30.11.2011
Málsnúmer 1111045
Fyrirhugaður er hluthafafundur í Eignarhaldsfélaginu Fasteign 30.nóvember. Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja fundinn.
24.
Þjónustukönnun meðal íbúa Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1111049
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í þjónustukönnun Capacent. Kostnaður kr. 166.000 takist af liðnum óráðstafað.  
25.
Tillaga að gjaldskrá fyrir tjaldstæðin í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1111053

Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá fyrir tjaldstæðin í Fjarðabyggð.

Gisting á tjaldstæði - á einstakling 10 ára og eldri - 500 krónur
Börn undir 10 ára -  frítt
Ellilífeyris- og örorkuþegar - 500 krónur
Rafmagn -  500 á sólarhring á hvert farartæki

<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Gjaldskránni jafnframt vísað til atvinnu- og menningarnefndar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til upplýsinga.

26.
Fræðslu- og frístundanefnd - 19
Málsnúmer 1111005F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 19 frá 9.nóvember lögð fram.
27.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 30
Málsnúmer 1111003F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr.30 frá 7.nóvember lögð fram.
28.
Hafnarstjórn - 91
Málsnúmer 1111004F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 91 frá 8.nóvember lögð fram.
29.
Atvinnu- og menningarnefnd - 21
Málsnúmer 1110020F
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 21 frá 10.nóvember lögð fram.
Rætt um fund sem haldinn var með Heilbrigðisstofnun Austurlands 7.nóvember. Vegna vinnu við fjárhagsáætlun verður bæjarstjórnarfundi, sem vera átti 17.nóvember, frestað til 24.nóvember.