Bæjarráð
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Lögð fram drög að frumvarpi með fjárhagsáætlun 2012, þriggja ára áætlun 2013-2015, starfsáætlanir nefnda, fjárhagsáætlanir a-hluta og a og b hluta ásamt málaflokkayfirliti. Álagningarstofnar 2012 verða sem hér segir:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Fasteignaskattur A: 0,43 % af húsmati og lóðarmati.
Fasteignaskattur B: 1,32 % af húsmati og lóðarmati.
Fasteignaskattur C: 1,45 % af húsmati og lóðarmati.
Lóðarleiga íbúðarhúsnæði: 0,51 % af lóðarhlutamati.
Lóðarleiga atvinnuhúsnæði: 1,00% af lóðarhlutamati.
Vatnsskattur: 0,31% af húsmati.
Holræsagjald: 0,29 % af húsmati.
Sorphreinsunargjald: 21.500 kr. á heimili
Sorpeyðingargjald: 10.168 kr á heimili.
Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði átta - mánaðarlega frá 1. febrúar.
Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.
Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra að reglur um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði óbreyttar á milli áranna 2011 og 2012. Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2012, þriggja ára áætlun 2013-2015 og starfsáætlunum nefnda til afgreiðslu bæjarstjórnar.