Bæjarráð
269. fundur
29. nóvember 2011
kl.
16:00
-
18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2012
Rætt um fjárhagsáætlun 2012 í tengslum við umræður sem urðu við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar á bæjarstjórnarfundi 24.nóvember sl.
2.
Reglur vegna endurgerð gamalla húsa
Drög að reglum vegna endurgerðar gamalla húsa í tengslum við atvinnuuppbyggingu í Fjarðabyggð. Vísað til umfjöllunar í atvinnu- og menningarnefnd með beiðni um umsögn til bæjarráðs.
3.
Málefni Lyfju í Fjarðabyggð
Lagt fram bréf stjórnsýslustjóra til velferðarráðuneytis og Lyfjastofnunar, þar sem ítrekaðar eru athugasemdir og óskað eftir svörum, vegna lokunar Lyfju í Fjarðabyggð á laugardögum.
4.
Endurnýjun á samningi við verkefnastjóra Rauða krossins og móttökufulltrúa nýrra íbúa
Lagt fram minnisblað vegna vinnu verkefnastjóra Rauða krossins og móttökufulltrúa nýrra íbúa. Bæjarráð samþykkir að taka þátt í ráðningu verkefnastjóra og móttökufulltrúa í áframhaldandi 50% starf til eins árs. Rauði kross Íslands mun fjármagna 40% af starfinu og Fjarðabyggð 10% Bæjarráð samþykkir jafnframt 280.000 kr. fjárheimild á árinu 2012 til að hægt sé að efna fjárhaldslegar skuldbindingar samningsins.
5.
Ágangur vatns á lóð í Árdal
Lögð fram drög að svari við bréfi húseigenda að Árdal 19 Eskifirði vegna fyrirspurnar frá 14.nóvember sl. er varðar vatnavexti í læk. Bæjarráð samþykkir bréf og felur stjórnsýslustjóra að svara erindi.
6.
Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 11.nóvember 2011
Fundargerð aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands frá 11.nóvember lögð fram til kynningar. Bæjarstjóri gerði grein fyrir efni fundar og bókun á aðalfundi. Jafnframt vísað til félagsmálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar.
7.
Sjálfbærniverkefnið á Austurlandi - kynning
Stýrihópur sjálfbærniverkefnisins hefur boðist til að kynna verkefnið bæjarfulltrúum á næstunni. Stefnt er á að kynning á sjálfbærniverkefninu verði í tengslum við bæjarstjórnarfund 15.desember. Jafnframt vísað til kynningar í eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd.
8.
Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Bréf Fljótsdalshéraðs frá 24.nóvember er varðar bókun bæjarráðs vegna framtíðar Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands. Í bókun segir að bæjarráð Fljótsdalshéraðs telji eðlilegt að umræða um framtíð sjóðsins fari fram innan verkefnisstjórnar um sameiningu stoðstofnana á Austurlandi.
9.
Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2011
Fundargerð stjórnar SSA frá 22.nóvember lögð fram til kynningar.
10.
Stjórnskipulag Fjarðabyggðar
Bæjarráð fór yfir vinnu við stjórnskipulag Fjarðabyggðar.
11.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
12.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 31