Fara í efni

Bæjarráð

272. fundur
19. desember 2011 kl. 08:30 - 10:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Aðgerðarplan vegna almannavarna í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1112056
Aðgerðarplan fyrir verkefni sem aðgerðarstjórn þarf að vinna að vegna almannavarna.
Fram lagt og kynnt.
2.
Aðalfundur StarfA 2011 - 8.11.2011
Málsnúmer 1110172
Lögð fram gögn frá aðalfundi og aðalfundargerð.
Fram lagt til kynningar.
3.
Stjórnarfundir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2011
Málsnúmer 1104083
Fundargerðir þriggja síðustu stjórnunarfunda lagðar fram til kynningar.
4.
Stefnumótun félagsþjónustusviðs Fjarðabyggðar fyrir árið 2011
Málsnúmer 1101058
Fram lögð sameiginleg stefna félagsþjónustu Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs sem samþykkt hefur verið af félagsmálanefndum sveitarfélaganna.
Bæjarráð samþykkir að vísa stefnunni til staðfestingar bæjarstjórnar.
5.
Reglur um liðveislu og eyðublað 2011
Málsnúmer 1102013
Reglur um liðveislu lagðar fram til kynningar.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til frekari úrvinnslu og ósk um greinargerð þar sem breytingar er listaðar upp og lagt mat á kostnað og breytingu á þjónustu.
6.
Starfshópur um almenningssamgöngur
Málsnúmer 1101197
Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri, kynnti undirbúningsvinnu við skipulagðar samgöngur í Fjarðabyggð og lagði fram minnisblað um stöðu málsins, leiðarkerfi ofl.
Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram að vinna að verkefninu.
 
7.
Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf
Málsnúmer 1104081
Bæjarstjóri gerði grein fyrir hluthafafundi í eignarhaldsfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram að vinna að málinu á þeim forsendum sem fyrir liggja.
8.
Aðgerðaráætlun í fræðslu- og frístundamálum 2012-2013
Málsnúmer 1108002
Fram lögð aðgerðaráætlun í fræðslu- og frístundarmálum.
Bæjarráð samþykkir aðgerðaráætlun enda taki hún alltaf mið af fjárhagsramma hvers árs.  Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
9.
Stofnfundur Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 1111090
Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.  Stofnfundur Samtaka orkusveitarfélaga var haldinn 25. nóvember s.l. en aðild að samtökunum eiga sveitarfélög sem eiga hagsmuna að gæta. 
Bæjarráð frestar ákvörðun um aðild að samtökunum fram yfir áramót en óskar eftir því að fá stofnfundargerð.
10.
Ályktun gegn niðurskurði í tónlistarskólum
Málsnúmer 1112038
Fram lögð ályktun frá Félagi tónlistarskólakennara þar sem lýst er áhyggjum af niðurskurði í tónlistarskólum.
Bæjarráð vísar erindi til fræðslu-og frístundanefndar.
11.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
Málsnúmer 1101152
Fundargerð lögð fram til kynningar.
12.
Fræðslu- og frístundanefnd - 20
Málsnúmer 1112005F
Fundargerð fram lögð til kynningar.
Leiga ónýtts húsnæðis til menningar- og íþróttastarfa rædd.