Fara í efni

Bæjarráð

273. fundur
28. desember 2011 kl. 22:00 - 23:00
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Stofnfjárhlutir í Sparisjóð Norðfjarðar
Málsnúmer 1108010
Í framhaldi af fundi með stjórnarformanni og stjórnarmanni fyrr í dag kom bæjarráð saman til að fara yfir efni fundarins.  Fyrir liggur að stjórn Sparisjóðs Norðfjarðar er einhuga í því að tilboð í stofnfé Sparisjóðsins sé of lágt.
Bæjarráð er sammála að fylgja áliti stjórnar Sparisjóðsins og Bankasýslu ríkisins um að tilboðið sé of lágt og því styður bæjarráð að hætt verði við söluferlið að svo stöddu.