Fara í efni

Bæjarráð

274. fundur
2. janúar 2012 kl. 08:30 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Styrkbeiðni 2012 frá Golfklúbbi Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1109252
Bréf Golfklúbbs Fjarðabyggðar frá 20.desember s.l. er varðar afgreiðslu fræðslu- og frístundanefndar á styrkbeiðni klúbbsins tekin til umfjöllunar.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fara yfir málið.
2.
Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2011-2012
Málsnúmer 1112080
Fundargerð 1.fundar samgöngunefndar SSA lögð fram til kynningar.
3.
Samstarfsnefnd SSA - Fundargerðir 2011-2012
Málsnúmer 1112081
Fundargerð 1.fundar samstarfsnefndar SSA lögð fram til kynningar.
4.
Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands 2011
Málsnúmer 1105180
Fundargerðir stjórnar og aukaaðalfundar frá 16.desember lagðar fram til kynningar.
5.
Hjólastígur milli byggðakjarna í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1110156
Staða mála vegna styrkbeiðni við gerð hjólreiðastígs milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar kynnt.  Sótt var um styrk til Vegagerðar en beiðni var hafnað en óskað eftir viðræðum.
Mannvirkjastjóra falið að vinna áfram að málinu.
 
6.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012
Málsnúmer 1110184
Kynnt bréf Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis þar sem kynnt er úthlutun á byggðakvóta fiskveiðiárið 2011-2012.  Fjarðabyggð er gefinn kostur á að setja reglur um úthlutun kvótans.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar og felur framkvæmdastjóra hafna og bæjarstjóra að vinna að málinu áfram.  Boðaður verður fundur með þeim sem eru með lögskráða báta í Fjarðabyggð 10. janúar n.k.
7.
Stofnfundur Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 1111090
Fundargerð stofnfundar lögð fram til kynningar.
Bæjarráð samþykkir að sækja um aðild að Samtökum orkusveitarfélaga.
8.
Sæluhús á Fagradal
Málsnúmer 1112112
Bréf Vegagerðar þar sem fjallað er um framtíð Sæluhússins á Fagradal. 
Bæjarráð samþykkir að koma ekki að endugerð hússins.  
 
9.
Endurnýjun vátrygginga Fjarðabyggðar 2012
Málsnúmer 1112074

Undir þessum dagskrárlið vék Jón Björn Hákonarson af fundi.

Sjóvá óskar eftir endurskoðun á tryggingarsamningi vegna tjónareynslu áranna 2010 og það sem af er 2011. Um er að ræða slysatryggingu og ábyrgðartryggingu.  Minnisblað mannauðsstjóra lagt fram.

Bæjarráð samþykkir tillögur sem koma fram á minnisblaði.

10.
Endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri lækkar
Málsnúmer 1112083
Bréf Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar þar sem lögð er fram tillaga að endurgreiðsluhlutfalli Fjarðabyggðar til tryggingu lífeyrisskuldbindinga Fjarðabyggðar.  Lífeyrisskuldbinding lækkara á milli og ár og verður 66%.
Bæjarráð samþykkir breytinguna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar. 
11.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011
Málsnúmer 1101153
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 19 lögð fram til kynningar.
12.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 33
Málsnúmer 1112010F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 33 lögð fram til kynningar.
Málefni Sparisjóðs Norðfjarðar tekin til umfjöllunar. Bæjarfulltrúarnir Elvar Jónsson og Eydís Ásbjörnsdóttir áttu fund með velferðarráðherra 27.12.2011. Elvar Jónsson gerði grein fyrir fundinum. Lagt fram minnisblað um samstarfsverkefni Communities for change. Breyting á nefndarskipan Fjarðali