Bæjarráð
279. fundur
6. febrúar 2012
kl.
08:30
-
10:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Samningur milli Fjarðabyggðar - Kirkju- og menningarmiðstöðvar og Menningarráðs Austurlands
Lögð fram til samþykktar endanleg útgáfa þríhliða samnings og viðauki við hann, sem fyrirhugað er að undirrita mánudaginn 6.febrúar á Skriðuklaustri. Samningur er um samstarf Menningarráðs Austurlands, Kirkju- og menningarmiðstöðvar á Eskifirði og Fjarðabyggðar um menningarstarf. Samningurinn var samþykktur af atvinnu- og menningarnefnd 27. október s.l. og er lagður fram með orðalagsbreytingum.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.
2.
Boð á úthlutun menningarstyrkja Menningarráðs Austurlands
Lagt fram til kynningar boð á úthlutun menningarstyrkja hjá Menningarráði Austurlands 6. febrúar.
Bæjarstjóri mætir á úthlutun ásamt Valdimar O. Hermannssyni og Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur.
3.
Málefni Lyfju í Fjarðabyggð
Fram lagt bréf Velferðarráðuneytis 30. janúar s.l. þar sem svarað er beiðni um að Lyfju verði veitt heimild til að afgreiða lyfseðla á laugardögum í útibúum í Fjarðabyggð. Ráðuneytið fellst ekki á að veita undanþágu.
Bæjarstjóra falið að ræða við lyfsala í Neskaupstað.
4.
Afmælishátíð 23-25.mars 2012
Bæjarráð samþykkir að fulltrúar Fjarðabyggðar á vinabæjarmótinu í Jyväskylä verði Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson og Elvar Jónsson
5.
Íbúafjöldi á Austurlandi 2009 - 2011
Lagt fram til kynningar samanburður á breytingu á íbúafjölda á Austurlandi á milli ársfjórðunga 2009 - 2011.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar til umfjöllunar.
6.
Málefni Slökkviliðs Fjarðabyggðar
Rætt um sjúkraflutninga í Fjarðabyggð.
Bæjarstjóri mun afla frekari upplýsinga fyrir næsta fund bæjarráðs um möguleika á auknu fjármagni og stöðuna á landsvísu.
7.
Endurnýjun samninga umhverfisráðuneytis og náttúrustofa.
Fram lagt bréf Náttúrustofu Austurlands þar sem fjallað er um framlög til rannsókna á hreindýrum.
Bæjarstjóra falið að funda með forstöðumanni og vinna málið áfram.
8.
NORA verkefnaumsókn - Communities for change
Fram lögð greinargerð bæjarritara vegna ráðstefnu sem haldin var í Kaupmannahöfn 24. janúar s.l. þar sem farið var yfir skipulag og uppsetningu verkefnis sem snýst um að greina atvinnuuppbyggingu í norrænum samfélögum.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögur bæjarritar og vísar málinu til atvinnu- og menningarnefndar til umfjöllunar
9.
Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2012
Fundargerð 793. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
Vísað til sviðsstjóra til kynningar.
10.
Aðalfundur Sláturfélags Austurlands 19.febúar
Boðaður er aðalfundur Sláturfélags Austurlands 19. febrúar n.k. kl 13:00 á Hótel Héraði.
Bæjarráð felur bæjarritara að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
11.
Umsókn um aðild að rammasamningum árið 2012
Framlagt til kynningar umsókn um aðild að rammasamning Ríkiskaupa á árinu 2012 en sveitarfélagið er þegar með samning um aðild. Fjármálastjóri mælir með að sveitarfélagið haldi áfram aðild að rammasamningum Ríkiskaupa.
Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra og felur honum að framlengja samning.
12.
Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Framlagt bréf frá Fiskistofu vegna leyfis fyrir fiskeldis í Reyðarfirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar tók málefnið fyrir á fundi sínum og vísar til bæjarráðs. Frestur hefur fengist til að veita umsögn til 14. febrúar.
Bæjarráð vísar erindi til umsagnar hafnarnefndar og atvinnu- og menningarmálanefndar.
13.
Samgönguáætlun mál 392 og 393 til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
Framlögð tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2011 og 2014 og tillaga til samgönguáætlunar 2011 til 2022.
Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri taka þingsályktanir til skoðunar.
14.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012
Fundargerð barnaverndarnefndar Fjarðabyggðar nr. 21 frá 31.01.2012 lögð fram til kynningar.
15.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 35
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 35 frá 30. janúar lögð fram til kynningar.