Fara í efni

Bæjarráð

281. fundur
20. febrúar 2012 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Sameining Austfirskra stoðstofnana (AST) - fundargerðir og skýrsla
Málsnúmer 1104003

Á fundinn er mættur Valdimar O Hermannsson. 

Drög að skipulagsskrá fyrir stoðstofnanir á Austurlandi, AST lögð fram til kynningar.

Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.

2.
Áhrif á landsbyggðina af breytingum á hlutverki Reykjavíkurflugvellar
Málsnúmer 1202077

Fram lögð tillaga bæjarstjóra um að taka þátt í vinnslu skýrslu þar sem dregin verða fram áhrif á íbúa og fyrirtæki á landsbyggðinni ef Reykjavíkurflugvöllur yrði lagður af í núverandi mynd. Meðal þátta sem metnir eru: Breytingar og áhrif á aðgengi íbúa landsbyggðar, atvinnulífs og staðbundinnar stjórnsýslu.

Bæjarráð samþykkir að taka þátt í vinnslu skýrslunnar.  Kostnaði að fjárhæð 550.000 kr. mætt með framlagi af liðnum óráðstafað.

3.
Menningarsamningur sveitarfélaga á Austurlandi og ríkisins 2011
Málsnúmer 1009174
Kynntur viðauki við menningarsamning sveitarfélaga á Austurlandi þar sem auknu fjármagni er veitt til málaflokksins á árunum 2012 og 2013 sem nemur 15,5 milljónir kr.
Bæjarráð fagnar að auknu fjármagni sé veitt til menningarmála á svæðinu.  Bæjarráð vísar erindi jafnframt til atvinnu- og menningarnefndar.
4.
Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2011-2012
Málsnúmer 1112080
Fundargerð samgöngunefndar SSA nr. 2 frá 8. febrúar s.l. lögð fram til kynningar.  Bæjarstjóri fór yfir þær umræður sem áttu sér stað á fundinum.
5.
Fundagerðir Skólaskrifstofu Austurlands 2011 - 2012
Málsnúmer 1104004
Til kynningar fundargerð framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 14. febrúar s.l.  Vísað til félagsmálanefndar og fræðslu-og frístundanefndar
6.
Landsþingsfulltrúar og 26.landsþing 2012
Málsnúmer 1202084
Boðað er til 26. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 23. mars n.k. í Reykjavík.
Fram lagt til kynningar.
7.
Samningur um sjúkraflutninga 2012
Málsnúmer 1202080
Samningur um sjúkraflutninga á milli Heilbrigðisstofnunar Austurlands og Fjarðabyggðar fram lagður til staðfestingar. 
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.
8.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 36
Málsnúmer 1202008F
Fundargerð er lögð fram til kynningar.