Bæjarráð
282. fundur
27. febrúar 2012
kl.
08:30
-
11:00
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Aðalfundur Sláturfélags Austurlands 19.febúar
Fram lagður ársreikningur Sláturfélags Austurlands fyrir árið 2011 til kynningar. Bæjarritari gerði grein fyrir aðalfundi.
2.
Heildaryfirlit yfir famlög úr Jöfnunarsjóði 2011
Fram lagt yfirlit um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Fjarðabyggðar á árinu 2011.
Vísað til fjármálastjóra og til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd og félagsmálanefnd.
3.
Evrópsk viðurkenning til strandbæja
Fram lagt yfirlit yfir viðurkenningar til strandbæja sem veittar hafa verið af Evrópuráðinu.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
4.
Lokun afgreiðslu Íslandspósts í Mjóafirði
Framlagt bréf Sigfúsar Vilhjálmssonar vegna lokunar á afgreiðslu Íslandspósts í Mjóafirði.
Bæjarráð mótmælir harðlega þeim áformum Íslandspósts að loka póstafgreiðslu í Mjóafirði og felur bæjarritar að kanna forsendur ákvörðunar.
5.
Læknisþjónusta í Fjarðabyggð
Á fundinn eru mættir frá Heilbrigðisstofunar Austurlands Einar Rafn Haraldsson forstjóri ásamt Emil Sigurjónssyni mannauðsstjóra.
Bókast eftir Einari að hann sé ósáttur við að hann sé sakaður um trúnaðarbrest.
Farið yfir málefnið í heild sinni. Lögð fram tillaga af Einari Rafni Haraldssyni um ráðstefnu á Austurlandi þar sem rædd væri stefna og framtíð í heilbrigðismálum fjórðungsins.
Bæjarráð tekur undir tillöguna og felur bæjarstjóra að fylgja henni eftir í samstarfi við forstjóra heilbrigðisstofnunarinnar.
6.
Samningur um félagsþjónustu við Breiðdalshrepp
Lagður fram til staðfestingar samningur Breiðdalshrepps um þjónustu félagsþjónustu Fjarðabyggðar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ljúka frágangi samnings og undirrita hann.
7.
Samgönguáætlun mál 392 og 393 til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
Farið yfir umsögn sem unnið hefur verið að. Bæjarráð leggur þunga áherslu á að framkvæmdum við Norðfjarðargöng og Suðurfjarðarveg verði flýtt. Bæjarráð vísar umsögn til endanlegrar staðfestingar bæjarstjórnar.
8.
Tilfærsla málefna fatlaðs fólks til sveitarfélaga
Fram lögð tillaga að viðauka á fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2012 vegna málefna fatlaðs fólks en tekjur hækka.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
9.
Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands
Fundargerð stjórnar frá 16. febrúar s.l. lögð fram til kynningar.
10.
Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Fundargerð frá 16. febrúar s.l. lögð fram til kynningar.
11.
Reglur um stuðningsfjölskyldur
Nýjar reglur um stuðningsfjölskyldur vegna fatlaðra barna lagðar fram til staðfestingar.
Vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
12.
Lausarstöður á Framkvæmdarsviði
Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.
Farið yfir starfsmannahald á framkvæmdasviði og stöður sem eru að losna.
13.
Samgöngumál í Fjarðabyggð
Á fundinn eru mættir fulltrúar Alcoa Fjarðaál, Janne Sigurðsson, Guðmundur Bjarnason og Magnús Þór Ásmundsson.
Farið yfir samgöngumál í Fjarðabyggð og rætt um öryggismál m.a. vegna slyss sem varð á veginum milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar.
14.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 27 frá 13.02.2012 lögð fram til kynningar.
15.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 36
Fundargerð fram lögð og kynnt.
16.
Atvinnu- og menningarnefnd - 26
Fundargerð fram lögð og kynnt.