Bæjarráð
Fram lagt bréf frá sameinaðri stoð- og þekkingarstofnun Austurlands AST þar sem óskað er eftir því að sveitarfélög gerist stofnaðilar að stofnuninni.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti aðild að stofnuninni og vísar staðfestingunni til bæjarstjórnar til samþykktar.
Lögð fram áskorun frá Ungmennafélaginu Leikni vegna bílastæða við íþróttavöllinn á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð vísar erindi til afgreiðslu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og fræðslu- og frístundanefndar til kynningar.
Fram lagður til kynningar þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti í samfélaginu.
Vísað til fræðslu- og frístundanefndar og félagsmálanefndar.
Boðað er til aðalfundar Sparisjóðs Norðfjarðar fyrir árið 2011 fimmtudaginn 29. mars 2012 kl. 17:00
Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
Fram lagt bréf Fiskistofu þar sem gerð er grein fyrir afgreiðslu á athugasemdum Fjarðabyggðar vegna útgáfu á rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi Laxa fiskeldis ehf í Reyðarfirði. Ekki er tekið tillit til ábendinga bæjarstjórnar við útgáfu leyfis.
Vísað til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn.
Lagðar fram til kynningar tölur yfir þróun íbúa í Fjarðabyggð fyrstu 2 mánuði ársins 2012. Óverulegar breytingar eru á fjölda íbúa.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
Jón Björn Hákonarson gerði grein fyrir fundi sem hann og bæjarstjóri sátu með umhverfis- og samgöngunefnd 14. mars s.l.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Í tilefni af umsögn sem Fjarðabyggð veitti við drög að samgönguáætlun Alþingis og fulltrúar sveitarfélagsins fylgdu eftir við umhverfis-og samgöngunefnd Alþingis, á fundi nefndarinnar þann 14.mars sl., ályktar bæjarráð Fjarðabyggðar eftirfarandi:
Það er algjört forgangsmál að flýta gerð Norðfjarðarganga til ársins 2013 á forsendum aukins umferðaröryggis, byggðaþróunar og mikilvægi atvinnusvæðisins fyrir alla þjóðina. Þekkt eru öll þau fjölmörgu rök sem bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur lagt fram máli þessu til stuðnings og koma fram í umsögn sveitarfélagsins. Til að tryggðar verði öruggar samgöngur innan sveitarfélagsins Fjarðabyggðar og m.a. í ljósi umferðaróhapps á Oddsskarði nýlega, þegar hópferðabifreið lenti utan vegar með fjölda farþega, verður ekki lengur beðið með þessa brýnu samgöngubót.