Fara í efni

Bæjarráð

287. fundur
2. apríl 2012 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Ársuppgjör Fjarðabyggðar 2011
Málsnúmer 1203156
Þenna lið dagskrár sat fjármálstjóri ásamt sérfræðingi á fjármálasviði.
Trúnaðarmál.
Fjallað um drög að ársuppgjöri 2011.
2.
Árskýrsla Haust 2011
Málsnúmer 1203114
Árskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir árið 2011 lögð fram til kynningar.   Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar
3.
Opinn fund á Reyðarfirði
Málsnúmer 1203120
Fram lagt bréf Ásmundar Ásmundsonar þar sem óskað er eftir opnum fundi um umhverfismál á Reyðarfirði.
Bæjarráð tekur vel í efni bréfs Ásmundar og stefnt verði að því halda fund fyrir lok apríl.    Bréfinu jafnframt vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
4.
Skate Park á Fáskrúðsfjörð
Málsnúmer 1203116
Fram lagt bréf frá brettaáhugamönnum vegna hugmynda um Skatepark á Fáskrúðsfirði.
Vísað til fræðslu- og frístundanefndar og til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
5.
Yfirfærsla heilsugæslu frá ríki til sveitarfélaga - mál 220.
Málsnúmer 1203143
Framlögð tilaga til þingsályktunar um mótun tímasettrar áætlunar um yfirfærslu heilsugæslunnar frá ríki til sveitarfélaga.
6.
Siðareglur
Málsnúmer 1201063
Frestað frá síðasta fundi.  Fram lagðar tillögur að siðareglum fyrir kjörna fulltrúa og stjórnendur Fjarðabyggðar.
Bæjarráð vísar reglunum til staðfestingar bæjarstjórnar.
7.
Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs 8.maí
Málsnúmer 1203148
Lagt fram til kynningar aðalfundarboð Lífeyrissjóðsins Stapa en fundurinn verður haldinn 8. maí 2012.
8.
Fulltrúi eldri borgara í nefnd til ákvörðunartöku dvalarheimilis Hulduhlíðar
Málsnúmer 1203154
Fram lagt bréf Félags eldri borgara á Eskifirði þar sem óskað er eftir að fulltrúi félagsins fái sæti í nefnd þeirri sem tekur ákvarðanir um örlög dvalarheimilsins Hulduhlíðar á Eskifirði.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið félagsins og fulltrúi þeirra fái setu í nefnd sem fjalli um málefnið ef hún verður skipuð.
Vísað til félagsmálanefndar til kynningar.
9.
Stjórnarfundur StarfA 2012
Málsnúmer 1203155
Fundargerð stjórnarfundar Starfsendurhæfingar Austurlands frá 28. mars 2012 lögð fram til kynningar.
Vísað til félagsmálanefndar til upplýsinga.
10.
Tillaga um vorhreinsun í tengslum við útgáfu vorbæklings
Málsnúmer 1203157
Bæjarráð samþykkir að farið verði í sérstakt átak í umhverfismálum í tengslum við útgáfu vorbæklings 2012.  Sérstaklega verði beint sjónum að bæjarkjörnunum, umhverfi fyrirtækja og lóða í þeirra umsjá, lóða í umsjón einstaklinga og opinna svæða sem eru á ábyrgð bæjarfélagsins.  Hvatt verði sérstaklega til umhverfisvitundar og mikilvægi þess að fallegt og snyrtilegt umhverfi séu lífsgæði.  Umfjöllun vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarnefndar og framkvæmd verði á hendi framkvæmdasviðs sem vinni verkefnaáætlun til að stuðla að framgangi verkefnisins.
11.
Heilbrigðisþjónusta í heimabyggð - mál 120.
Málsnúmer 1203130
Fram lögð til kynningar tillaga til þingsályktunar um beina þátttöku sveitarfélaga og starfsmanna heilbrigðisstofnana í skipulagningu og stjórnun heilbrigðisþjónustu í heimabyggð.
12.
Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (Heildarlög)
Málsnúmer 1203161
Dagskrárliðnum frestað til næsta fundar bæjarráðs.
13.
Fyrirspurn vegna Fannardalsvegar í Norðfirði
Málsnúmer 1203158
Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu liðar.
Fram lagt bréf frá Guðröði Hákonarsyni þar sem spurst er fyrir um lagfæringar á Fannardalsvegi í Norðfirði.
Bæjarráð óskar eftir umsögn mannvirkjastjóra um málið.
Uppsögn fjármálastjóra. Fjármálastjóri gerði grein fyrir uppsögn á starfi sínu frá og með 1. apríl. Bæjarráð þakkar fjármálastjóra fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í störfum.