Fara í efni

Bæjarráð

293. fundur
7. maí 2012 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Aðalfundur Menningarráðs Austurlands - Dagskrá og tilnefning á aðalfund
Málsnúmer 1205010
Tilnefning fulltrúa Fjarðabyggðar á aðalfund Menningarráðs Austurlands sem haldinn verður föstudaginn 11.maí á Vopnafirði. Fjarðabyggð á 5 fulltrúa.
Bæjarráð felur eftirtöldum fulltrúum að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinn.  Páll Björgvin Guðmundsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Pétur Þór Sörensson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Þorlákur Ágústsson.  Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
2.
Forkaupsréttarlisti Fjarðabyggðar 2012
Málsnúmer 1201259
Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.
Forkaupsréttarlista yfir fasteignir í Fjarðabyggð vísað til afgreiðslu bæjarráðs frá fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar 30.apríl.
Bæjarráð vísar lista til nánari skoðunar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
3.
Framkvæmdir við gömlu bæjarbryggjuna í Neskaupstað
Málsnúmer 1205016
Þennan dagskrárlið sátu mannvirkjastjóri og framkvæmastjóri hafna.
Framlagt bréf frá íbúasamtökum á Norðfirði þar sem óskað er eftir kynningarfundi vegna framkvæmda við gömlu bæjarbryggjuna í Neskaupstað. 
Bæjarráð tekur vel í erindið.  Verður tekið fyrir á fundi sem haldinn verður um umhverfismál í Neskaupstað þriðjudaginn 15. maí n.k. kl. 20:00.   Þá verður haldinn fundur um umhverfismál á Reyðarfirði mánudaginn 14. maí n.k. kl 20:00.
4.
Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2012
Málsnúmer 1205009
Fundagerðir stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 3. 2. og 27.4. s.l. lagðar fram til kynningar. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
5.
Lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila
Málsnúmer 1110040
Lögð fram til kynningar ræða formanns Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu þar sem fjallað er um stöðu viðræðna samtakanna við Fjármálaráðuneytið um greiðslu lífeyrisskuldbindinga.  Málið snýst um ábyrgð á greiðslu lífeyrisskuldbindinga hjúkrunarheimila.
Bæjarráð felur bæjarritara að fylgja málinu eftir.
6.
Verkefni starfsmanns AST í ferða- og menningarmálum sumarið 2012
Málsnúmer 1204136
Framlögð tillaga að tímabundnum viðauka við þjónustusamning við AST stoðstofnun um sérgreind verkefni fyrir tímabilið maí til ágúst 2012.
7.
Memorandum of the JEFES Cities
Málsnúmer 1205020
Lagt fram minnisblað um norræn vinabæjarsamskipti frá fundi vinabæja í Jyväskylä 24.mars sl. Þar er tekið undir tillögur sem lagðar voru fram um vinabæjarsamstarf.  Tilnefna þarf tengiliði vegna málaflokka. 
Bæjarráð samþykkir tillögurnar enda eru þær í anda þeirra hugmynda sem lagðar voru upp á fundi 2010.
8.
Verklag vegna breytinga á skipan í ráð,nefndir og stjórnir í stjórnkerfi Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1205022
Fram lagt verklag vegna skipan fulltrúa í nefndir sveitarfélagsins. 
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti verklagið
9.
Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1106064
Framlagt minnisblað móttökufulltrúa nýbúa frá 4.maí um flutninga til og frá Fjarðabyggð sl. mánuði.  Í Fjarðabyggð standast tölur nokkurn vegin á.
10.
Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf
Málsnúmer 1104081
Fram lagt tölvupóstur frá Eignarhaldsfélaginu fasteign um fjárhagslega endurskipulagningu og grunn að nýjum leigusamningum. Boðað er til fundar þriðjudaginn 8. maí n.k. um efni leigusamnings og áhrif á leigutaka í endurskipulögðu félagi.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að mæta á fund fyrir hönd Fjarðabyggðar.
11.
Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (Heildarlög)
Málsnúmer 1203161
Fram lagður tölvupóstur frá atvinnuveganefnd Alþingis þar sem fulltrúi Fjarðabyggðar er boðaður á fund nefndarinnar 8. maí n.k.
Bæjarráð felur formanni bæjarráðs Jens Garðari Helgasyni að mæta fyrir hönd Fjarðabyggðar á fund atvinnuveganefndar.
12.
Stofnfundur Austfirskra stoðstofnana AST 8.maí 2012
Málsnúmer 1204115
Stofnfundur austfirskra stoðstofnana er boðaður 8. maí n.k. á Reyðarfirði.  Fram lagður þjónustusamningur við stoðstofnunina um þjónustu á sviði menningar-, ferða-, atvinnu- og menntamála.
Bæjarstjóra falin undirritun þjónustusamnings við stoðstofnunina.
13.
Framkvæmdir við húsnæðisúrræði í málaflokki fatlaðs fólks - áætlanagerð sveitarfélaga og þjónustusvæða
Málsnúmer 1204128
Lögð fram drög að umsögn félagsmálastjóra og verkefnastjóra hjá Skólaskrifstofu Austurlands vegna framkvæmda við húsnæðisúrræði í málefnum fatlaðs fólks. Félagsmálanefnd tekur málið til umfjöllunar síðdegis mánudaginn 7. maí. Mannvirkjastjóri tekur saman ítarlegri kostnaðaráætlun áður en umsögn verður send til Sambandsins fyrir 11. maí nk. en þá rennur umsagnarfrestur út.
Bæjarráð vísar umsögn til staðfestingar bæjarstjórnar.
14.
Atvinnu- og menningarnefnd - 30
Málsnúmer 1204017F
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 30 frá 3.maí lögð fram til kynningar.
15.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 41
Málsnúmer 1204016F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 41 frá 30.apríl lögð fram.
16.
Hafnarstjórn - 98
Málsnúmer 1204014F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 98 frá 2.maí sl. lögð fram til kynningar
17.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012
Málsnúmer 1201124
Fundargerð barnaverndarnefndar  nr. 24 frá 30.apríl lögð fram til kynningar.