Bæjarráð
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði um málefni Vélsmiðjunnar á fundi 12.júní og gerði ekki athugasemdir við að Menningarfjelagið fái húsnæðið til afnota, en bendir á að umrædd eign var keypt af sveitarfélaginu til niðurrifs í tengslum við uppbyggingu á nýjum leikskóla. Jafnframt er ekki gert ráð fyrir byggingum á þessu svæði í deiliskipulagstillögu sem auglýst var á sínum tíma. Leggur nefndin áherslu á að húsnæðið verði ekki afhent þannig að sveitarfélaginu verði gert að borga bætur verði staðið við fyrri áætlanir um niðurrif.
Framlögð fundargerð yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar frá 9.júní. Bæjarráð samþykkir tillögu yfirkjörstjórnar um kjörstaði í Fjarðabyggð. Kjörstaðir verða í Sólbrekku Mjóafirði, Nesskóla Neskaupstað, Kirkju- og menningarmiðstöðinni Eskifirði, Félagslundi á Reyðarfirði, Grunnskólanum á Stöðvarfirði og Grunnskólanum á Fáskrúðsfirði. Kjörstaðir verða opnaðir kl. 09:00 og kjörfundur mun standa til kl. 22:00 nema í Mjóafirði en þar mun kjörfundur standa til kl. 17:00.