Bæjarráð
298. fundur
25. júní 2012
kl.
09:00
-
11:00
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Ársreikningar 2011 - Hulduhlíð
Ársreikningur Hulduhlíðar vegna ársins 2011 lagður fram til kynningar. Ársreikningur var staðfestur í félagsmálanefnd þann 14.maí.  Rekstrarniðurstaða er neikvæð sem nemur um 19.m.kr. Ástæður þessa eru einkum tvíþættar; hækkanir lífeyrisskuldbindinga og léleg nýting á rýmum. Ekki eru miklar breytingar á efnahagsreikningi milli ára. Framkvæmdastjóri hóf nýverið talningu á birgðum en slík talning hefur ekki farið fram áður.
2.
Ársreikningar 2011 - Uppsalir
Ársreikningur Uppsala vegna ársins 2011 lagður fram til kynningar. Ársreikningur var staðfestur á fundi félagsmálanefndar þann 14.maí. Rekstrarniðurstaða er neikvæð sem nemur um 3.m.kr. Hækkun er á lífeyrisskuldbindingum á milli ára líkt og í Hulduhlíð en upphæðin nemur um 2.m.kr. Daggjaldatekjur jukust á árinu en aðrir tekjuliðir eru sveiflóttari. Mjög góð nýting var bæði á dvalar- og hjúkrunarýmum á síðasta ári.
3.
Fjárhagsstaða Fjarðaferða ehf. - frjáls nauðasamningur
Framlögð gögn til upplýsinga vegna sölu Fjarðaferða en búið er að ganga frá sölu fyrirtækisins.
4.
Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði
Kynnt afgreiðsla eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá fundi 11.júní vegna málefna sem vísað var til nefndarinnar til afgreiðslu vegna Franska spítalans á Fáskrúðsfirði.
5.
Fundagerðir yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar vegna forsetakosninga 2012
Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 20.júní lögð fram og samþykkt.
6.
Fundur með fjárlaganefnd 2012
Bréf Alþingis frá 18.júní þar sem fjárlaganefnd kynnir áherslur sínar í samskiptum við sveitarfélög vegna fjárlagagerðar en í bréfinu er óskað eftir sjónarmiðum frá sveitarfélögum vegna fjárlagagerðar næsta árs. Tekið fyrir á næsta fundi.
7.
Leyfi til dúntekju í æðarvarpi í ós-hólma Eskifjarðarár
Sigurður Baldursson sækir um heimild til dúntekju í óshólma Eskifjarðarár. Bæjarráð felur mannvirkjastjóra að ræða við umsækjanda og óskar jafnframt eftir umsögn mannvirkjastjóra sem lögð verður fyrir næsta fund bæjarráðs.
8.
Málverk að gjöf
Systkinin Margrét Halldóra og Kjartan Sveinsbörn hafa fært Fjarðabyggð að gjöf, málverk af þorpinu á Reyðarfirði. Bæjarráð færir þeim systkinum bestu þakkir fyrir gjöfina.
9.
Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Framlögð til kynningar gögn um áform Laxa um fiskeldi í Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði. Vísað til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn.
10.
Umsókn um færslu á starfsleyfi af HB Granda hf á Fiskeldi Austfjörðum ehf.
Framlagt til kynningar bréf Umhverfisstofnunar frá 19.júní þar sem heimilað er að starfsleyfi HB Granda fyrir kvíaeldisstöð í Fáskrúðsfirði verði flutt á fyrirtækið Fiskeldi Austfjörðum ehf.
11.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 32 frá 18.júní lögð fram til afgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.