Fara í efni

Bæjarráð

301. fundur
23. júlí 2012 kl. 08:30 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Ákvörðun Orkustofnunar um leyfða arðsemi flutningsfyrirtækis og dreifiveitna raforku vegna tímabilsins 2011 - 2015
Málsnúmer 1207074
Kynnt drög að ákvörðun Orkustofnunar vegna leyfðrar arðsemi sérleyfisfyrirtækja á raforkumarkaði. 
Vísað til mannvirkjastjóra til úrvinnslu.
2.
Fasteignamat 2013
Málsnúmer 1207045
Fasteignamat á Austurlandi hækkar að meðaltali um 5,5% en hækkunin í Fjarðabyggð er 4,5%
3.
Fjárhagsáætlun 2012 - Viðauki nr. 4
Málsnúmer 1207061
Minnisblað fjármálastjóra frá 11.júlí vegna viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2012
 

Um er að ræða hliðrun á fjárfestingu veitunnar í 3ja ára áætlun til ársins 2012 að upphæð 88 milljónir kr. en sparnaður er um 30 miljónir kr. með samnýtingu á skurði. Framkvæmdin verður fjármögnuð af handbæru fé aðalsjóðs og breytir þannig innri viðskiptastöðu vatnsveitu gagnvart aðalsjóði. Í upphaflegri fjárhagsáætlun 2012 er gert ráð fyrir að viðskiptastaða vatnsveitu gagnvart aðalsjóði sé jákvæð um 88,7 m.kr. í árslok en verði nálægt núlli miðað við ofangreinda framkvæmd. Þar sem um hliðrun í framkvæmdatíma er að ræða og einn áfanga í heildarframkvæmd við endurnýjun vatnsveitu á Fáskrúðsfirði hefur þessi samningur ekki áhrif á niðurstöðu efnahagsliða 2015 í 3ja ára áætlun.

Bæjarráð samþykkir viðaukann. 

4.
Framkvæmdir á skíðasvæðinu í Oddsskarði
Málsnúmer 1206036
Minnisblað mannvirkjastjóra frá 10.júlí.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og samþykkir framkvæmd.  Fjármögnun vísað til afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2013.
5.
Nýsköpun í opinberum rekstri
Málsnúmer 1207056
Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem boðað er til nýsköpunarráðstefnu 30. október nk. í Reykjavík.
6.
Bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands er varðar umsóknir um starfsleyfi fyrir laxeldi allt að 200 tonnum
Málsnúmer 1207083
Bréf HAUST lagt fram til kynningar og umfjöllunar en þar er óskað umsagnar um 200 tonna leyfisumsóknir í Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra í samstarfi við framkvæmdasvið að óska eftir fresti til að veita umsögn og vinna að málinu.
7.
Ársreikningur 2011 - Veturhús
Málsnúmer 1207062
Ársreikningur Veturhúsa vegna 2011 lagður fram til kynningar
8.
Allsherjarþing Evrópusamtaka sveitarfélaga, CEMR, verður haldið í september á Spáni
Málsnúmer 1207044
Allsherjarþing CEMR verður haldið í Cadiz á suður Spáni 26.- 28.september.
9.
Norðfjarðarrétt - viðgerð
Málsnúmer 1109005
Vísað er til bókunar landbúnaðarnefndar frá fundi 1.september 2011 en þar lagði nefndin áherslu á að farið verði í viðgerð á Norðfjarðarrétt við fyrsta tækifæri en ljóst er að réttin þolir ekki að vera án viðhalds lengur. Réttin hefur töluvert sögu- og menningarlegt gildi sem ber að varðveita. Málinu var vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar vegna vinnu við fjárhagsáætlun ársins en ekki var gert ráð fyrir framlögum til réttarinnar við lokafrágang fjárhagsáætlunar 2012. Samvinnufélag útgerðarmanna Neskaupstað lagði nýlega fram 2 milljónir kr. til lagfæringa á réttinni gegn því að sveitarfélagið legði 1 milljón til verksins. Lagt er til að bæjarráð samþykki að skoðað verði hvort hægt sé að gera við réttina með 3 milljóna framlagi SÚN og sveitarfélagsins. Sé það mat mannvirkjastjóra að viðgerð sé framkvæmanleg fyrir þá fjárhæð er lagt til að heimild verði veitt fyrir kostnaði allt að 1 milljón úr málaflokki 13 atvinnumálum.
Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra. 
10.
Hafnarstjórn - 101
Málsnúmer 1207002F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 101 frá 10.júlí lögð fram til samþykktar í umboði bæjarstjórnar í sumarleyfi hennar.
11.
Heimsókn til Graveline 2012
Málsnúmer 1207084
Heimsókn til Graveline 28. - 29. september 2012.
Bæjarráð samþykkir að fulltrúar Fjarðabyggðar til Graveline verða Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri auk Birkis Snæs Guðjónssonar fulltrúa íbúa.
12.
Umsókn um undirbúning og framkvæmd landsmóts UMFÍ 50
Málsnúmer 1107099

Bæjarráði gerð grein fyrir að að sótt hafi verið um að halda landsmót 50 ára og eldri fyrir árið 2013 í Neskaupstað.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />