Bæjarráð
302. fundur
8. ágúst 2012
kl.
08:30
-
10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands er varðar umsóknir um starfsleyfi fyrir laxeldi allt að 200 tonnum
Fram lögð tvö bréf frá Skipulagsstofunun er varða auglýsingu Haust á starfsleyfum allt að 200 tonnum. Jafnframt kynnt að frestur hefur verið veittur til 24. ágúst til að veita umsögn um starfsleyfin.
Á fundinn er mættur Jón Brúnsteð og var farið yfir staðsetningar á 200 tonna umsóknum fyrir fiskeldi í Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindi til umsagnar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar auk kynningar í atvinnu- og menningarnefnd.
2.
Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð
Yfirlit yfir aðflutta og brottflutta íbúa í Fjarðabyggð janúar til júlí 2012 lagt fram til kynningar.
3.
Samvinna vinnuskóla Fjarðabyggðar og Verkmenntaskóla Austurlands
Fram lagt bréf frá Verkmenntaskóla Austurlands til kynningar þar sem kynntar eru hugmyndir að samstarfi skólans og Fjarðabyggðar um verkefni í vinnuskóla.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndir skólans og felur fræðslustjóra og mannvirkjastjóra að funda með fulltrúa Verkmenntaskólans um málið.
4.
Siðareglur
Til kynningar fyrir bæjarfulltrúa lögð fram staðfesting Innanríkisráðuneytis á siðareglum kjörinna fulltrúa.
5.
Starfs- og rekstrarleyfi Fiskeldis Austfjörðum ehf. í Fáskrúðsfirði
Fram lagt bréf Fiskistofu þar sem óskað er umsagnar um umsókn Fiseldis Austfjörðum ehf fyrir rekstrarleyfi fyrir 3000 tonnum á þorski í Fáskrúðsfirði. Fiskistofa hefur veitt frest til umsagnar til 24. ágúst n.k.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindi til umsagnar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar auk kynningar í atvinnu- og menningarnefnd.
6.
Tómar íbúðir á Austurlandi 2011 - ósk um viðræður
Fram lagt afriti af bréf Íbúðalánasjóðs til Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem svarað er fyrirspurn um ráðstöfun eigna sjóðsins til sölu eða leigu. Bæjarstjóri hefur verið í viðræðum við sjóðinn um að hann setji fleiri íbúðir á leigumarkað í Fjarðabyggð.
7.
Útgáfa landsáætlunar um meðhöndlun úrgangs 2012-2023
Fram lögð umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um landsáætlun um meðhöndlun úrgangs fyrir árin 2012 - 2023.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til umsagnar.
8.
Úthlutun úr styrkvegasjóði fyrir árið 2012
Fram lagt bréf frá Vegagerð þar sem gerð er grein fyrir 3.000.000 kr framlagi til stofnvega í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til umfjöllunar og felur nefndinni að leggja fram tillögur um ráðstöfun fjársins.
9.
Tilkynning um breytingu á regluverði
Vegna starfsloka Björgvins Valdimarssonar samþykkir bæjarráð að Björgvin láti af starfi regluvarðar og við starfi regluvarðar taki Indriði Indriðason kt. 180465-4489.
10.
Prókúra fjármálastjóra
Í 4. mlgr. 55. gr. laga nr. 138/2011 (Sveitastjórnarlög)segir: "Framkvæmdastjóri er prókúruhafi sveitarfélags. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki bæjarstjórnar. Bæjarráð fer með hlutverk bæjarstjórnar í sumarleyfi.
Með vísan í sveitastjórnarlög og samþykktir sveitarfélagsins samþykkir bæjarráð að heimila bæjarstjóra að veita Indriða Indriðasyni kt. 180465-4489 , fjármálastjóra sjálfstæða prókúruheimild f.h. sveitarfélagsins sem nái til allra banka- og verðbréfareikninga sveitarfélagsins og stofnanna þess.
Jafnframt eru felldar niður prókúruheimildir Björgvins Valdimarssonar kt. 041170-3529