Bæjarráð
304. fundur
23. ágúst 2012
kl.
16:00
-
18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Olíubirgðastöð í Reyðarfirði
Haukur Óskarsson og Valgeir Kjartansson frá Mannviti sátu þennan lið fundarins auk formanns eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og framkvæmdastjóra hafnanna. Rædd voru málefni olíubirgðastöðvar, olíuleit á Drekasvæðinu og tengd mál.
2.
Bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands er varðar umsóknir um starfsleyfi fyrir laxeldi allt að 200 tonnum
Framkvæmdastjóri hafna sat þennan lið fundarins og fór, ásamt bæjarstjóra, yfir drög að umsögn vegna starfsleyfis fyrir 200 tonna laxeldi í Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði. Bæjarráð samþykkir drög að umsögn en tekið hefur verið tillit til athugasemda hafnarstjórnar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita umsögnina.
3.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013
Farið yfir undirbúning, úthlutun ramma og tekjuáætlun fjárhagsáætlunar 2013.
4.
Aðgengismál fatlaðra við kjörstaði í Fjarðabyggð
Upplýsingar frá framkvæmdasviði um aðgengismál fyrir fatlaða við Grunnskólann á Stöðvarfirði. Bæjarráð felur framkvæmdasviði að tryggja að aðgengi fyrir fatlaða verði viðunandi við alla kjörstaði í Fjarðabyggð í kosningunum í október nk.
5.
Samningur um ráðgjafar- og verktakastörf
Lagður fram samningur við Jónu Árnýju Þórðardóttur vegna ráðgjafar- og verktakastarfa. Bæjarráð staðfestir samninginn.
6.
Samningur um rekstur Náttúrustofu Austurlands 2012 - endurnýjun
Framlagt bréf umhverfisráðuneytisins um endurnýjun samnings um rekstur Náttúrustofu Austurlands og drög að samningi við ráðuneytið.  Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
7.
Tilnefningar til nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu og stjórnsýslu
Óskað er eftir tilnefningum, fyrir 21.september, til nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu og stjórnsýslu. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
8.
Fjárhagsleg viðmið sveitarstjórnarlaga
Lagt fram til kynningar bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga en frestur til að skila inn langtímaáætlun vegna skuldaviðmiðana hefur verið veittur til 17.nóvember.
9.
Leiguhúsnæði í Fjarðabyggð
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála er varðar leiguhúsnæði í Fjarðabyggð.
10.
Þátttaka í útsvari 2012
Rætt um skipan liðs Fjarðabyggðar í spurningakeppninni Útsvari. Bæjarráð sammála um að liðið verði skipað þeim Ingibjörgu Þórðardóttur, Jóni Svani Jóhannssyni og Kjartani Braga Valgeirssyni.
11.
Aðalfundur Þróunarfélags Austurlands 2012
Aðalfundur Þróunarfélags Austurlands verður haldinn 30.ágúst kl. 15:00 á Reyðarfirði. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vera fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum.
12.
Hafnarstjórn - 102
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 102 frá 21.ágúst lögð fram og samþykkt í umboði bæjarstjórnar vegna sumarleyfis hennar.
13.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 44
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 44 frá 20.ágúst lögð fram og samþykkt í umboði bæjarstjórnar vegna sumarleyfis hennar.