Bæjarráð
305. fundur
29. ágúst 2012
kl.
16:00
-
19:00
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013
Þennan dagskrárlið fundar sátu Jóna Árný Þórðardóttir og Bjarni Ólafur Birkisson sérfræðingur á fjármálasviði.
Farið yfir forsendur fjáhagsáætlunar, tekju- og gjaldahlið áætlunar.
Fram lagðir fjárhagsrammar fyrir árið 2013.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögum að fjárhagsrömmum ársins 2013 til nefnda til vinnslu.
2.
Endurskoðun á úthlutunarreglum íþrótta- og frístundastyrkja
Er á dagskrá fræðslu- og frístundanefndar í dag.
Bæjarráð felur fræðslu- og frístundanefnd að endurskoða úthlutunarreglur íþrótta- og frístundastyrkja.
3.
Úthlutun úr styrkvegasjóði fyrir árið 2012
Til kynningar tillaga frá ESU um ráðstöfun styrkvegafjár.
Framlagt bréf frá Vegagerð þar sem gerð er grein fyrir 3.000.000 kr framlagi til stofnvega í sveitarfélaginu.
Framlagt bréf frá Vegagerð þar sem gerð er grein fyrir 3.000.000 kr framlagi til stofnvega í sveitarfélaginu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd sótti alls um styrk að fjárhæð 7 mkr. og leggur til eftirfarandi forgangsröðun við bæjarráð:
Byggingu á brú yfir Seldalsá 1,0 mkr.
Endurbætur á veg upp á Eskifjarðarheiði 0,5 mkr.
Slóða í Skógræktarsvæði á Eskifirði 1,0 mkr.
Ofaníburður í Fannardalsveg 0,5 mkr.
Endurbætur á veg upp á Eskifjarðarheiði 0,5 mkr.
Slóða í Skógræktarsvæði á Eskifirði 1,0 mkr.
Ofaníburður í Fannardalsveg 0,5 mkr.
Bæjarráð samþykkir tillögur nefndarinnar.
4.
Endurskoðun starfsmannastefnu Fjarðabyggðar
Lagðar fram tvær nýjar leiðbeinandi reglur vegna starfsmannamála.
5.
Fjarvistastefna
Lögð fram stefna í starfsmannamálum sem fjallar um fjarvistir starfsmanna.
Bæjarráð staðfestir fjarvistarstefnuna.
6.
Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2012
Fundargerð frá 24.ágúst lögð fram til kynningar.
7.
750 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Fáskrúðsfirði
Lagt fram bréf Skipulagstofnunar, dagsett 24. júlí 2012, þar sem óskað er eftir umsögn Fjarðabyggðar um hvort og á hvaða forsendum ofanflóðavarnir á Fáskrúðsfirði skuli háðar mati á umhverfisáhrifum.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti á 44. fundi sínum að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Bæjarráð staðfestir niðurstöðu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.