Fara í efni

Bæjarráð

307. fundur
10. september 2012 kl. 08:30 - 11:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
750 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 1101234
Framlagt bréf Skipulagsstofnunar frá 5.september, þar sem fallist er á að framkvæmdir við ofanflóðavarnir á Fáskrúðsfirði við Nýjabæjarlæk séu ekki háðar mati á umhverfisáhrifum. Lagt fram til kynningar.
2.
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga Austurlandi 2012
Málsnúmer 1209023
Framlagt til kynningar fundarboð og dagskrá aðalfundar SSA 2012 sem haldinn verður 14. og 15. september á Borgarfirði eystri. Rætt um undirbúning fundar.
3.
Afslættir fasteignagjalda
Málsnúmer 1209039
Framlögð greinargerð fjármálasviðs, frá 7.september, um áhrif breytinga á tekjumörk í reglum um afslátt af fasteignaskatti eldri borgara og örorkulífeyrisþega.  Bæjarráð sammála um að tekjumörk verði endurskoðuð í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2013. Bæjarstjóra falið að leggja endanlega tillögu fyrir bæjarráð síðar.   
4.
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2012
Málsnúmer 1209031
Framlagt fundarboð ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2012 sem haldinn verður 26. september nk. í Reykjavík.  Bæjarráð felur bæjarritara að sækja ársfundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
5.
Beiðni um bætta félagsþjónstu á Stöðvarfirði
Málsnúmer 1206156
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála vegna umræðu um félagsaðstöðu eldri borgara og ungmenna á Stöðvarfirði.  Tekið fyrir á næsta fundi þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.
6.
Bréf frá foreldrum barna á Sólvöllum - Saltkráku
Málsnúmer 1208080
Framlagt bréf, dagsett 23.ágúst, frá foreldrum barna á deildinni Saltkráku á Sólvöllum í Neskaupstað, þar sem óskað er eftir afslætti á leikskólagjaldi vegna flutnings hluta barna inn á Kirkjumel. Einnig lagt fram minnisblað fræðslustjóra frá 9.september.  Erindi foreldra vísað til fræðslu- og frístundanefndar til umsagnar.  Tekið fyrir á fundi bæjarráðs síðar í mánuðinum.  
7.
Drög að heildstæðu frumvarpi til náttúruverndarlaga
Málsnúmer 1209036
Framlagt bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytisins þar sem óskað er umsagnar um ný náttúruverndarlög fyrir 25.september.  Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd er falin afgreiðsla málsins og að gefa umsögn fyrir tilgefinn frest. 
8.
Drög af samþykktum og dagskrá aukaaðalfundar Mennigarráðs Austurlands
Málsnúmer 1209019
Aukaaðalfundur Menningarráðs Austurlands verður haldinn á Borgarfirði eystri 14. september 2012. Lögð fram dagskrá fundar ásamt breytingum á samþykktum ráðsins og viðauka við samning sveitarfélaga um menningarmál.  Fulltrúar Fjarðabyggðar á fundinum verða Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.  
9.
Heyskapur á jörðinni Hólmum
Málsnúmer 1209001
Framlagt bréf Snorra Jónssonar frá 1.september, þar sem óskað er eftir heimild til að fá að heyja tún á jörðinni Hólmum í Reyðarfirði. Einnig lagt fram minnisblað mannvirkjastjóra frá 9.september.  Á grundvelli aðalskipulags Fjarðabyggðar getur bæjarráð ekki fallist á ósk Snorra og felur bæjarstjóra að svara erindinu.
10.
Innkaupareglur Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2008-01-25-92
Umræða um innkaupareglur. Bæjarráð vísar reglunum til fjármálasviðs og bæjarstjóra til frekari vinnslu.
11.
Þrautabraut í tengslum við Verkmenntaskóla Austurlands
Málsnúmer 1209018
Framlagt bréf Þórðar Júlíussonar skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands, frá 24.ágúst, um gerð þrautabrautar í nágrenni skólans. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.  
12.
Vatnsveita Fjarðabyggðar Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 2008-03-11-503
Framlagður til kynningar verksamningur um framkvæmdir við stofnlögn vatnsveitu á Fáskrúðsfirði í samvinnu með RARIK.  Bæjarráð hefur áður samþykkt framkvæmdina og staðfestir nú samninginn.
13.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Málsnúmer 1201123
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 33 frá 3.september 2012 lögð fram til kynningar.
14.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 45
Málsnúmer 1208012F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 45 frá 3.september 2012 lögð fram til kynningar.
Samningur við Rarik um sameiginlega framkvæmd við veituframkvæmd á Fáskrúðsfirði lagður fram til kynningar.