Bæjarráð
308. fundur
17. september 2012
kl.
08:30
-
10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013
Unnið áfram í fjárhagsáætlunarvinnu.
2.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Fræðslu- og frístundanefnd
Formaður fræðslu- og frístundanefndar, fræðslustjóri og íþrótta- og tómstundafulltrúi sátu þennan lið fundarins. Búið er að vinna launaáætlanir fyrir stofnanir og fara yfir aðra rekstrarliði. Eftir er að funda með hluta af forstöðumönnum stofnana. Gengið hefur verið frá launaramma æskulýðsmála en einstaka kostnaðarliði þarf að yfirfara betur.
3.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Atvinnu- og menningarnefnd
Þennan lið fundarins sat formaður atvinnu- og menningarnefndar. Allt bendir til að úthlutaður rammi atvinnu- og menningarmála dugi til reksturs viðkomandi málaflokka.
4.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013
Bréf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins frá 10.september þar sem bæjarstjórnum er gefinn kostur á að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2012 til 2013. Umsóknarfrestur er til 28.september. Framkvæmdastjóra hafna, í samráði við bæjarstjóra, falið að ganga frá umsókn og senda innan tilskilins frests.
5.
Beiðni um bætta félagsþjónstu á Stöðvarfirði
Frá fundi bæjarráðs 10.september. Lagt fram minnisblað framkvæmdasviðs frá 13.september þar sem farið er yfir mögulegan flutning félagsaðstöðu eldri borgara á Stöðvarfirði í fyrrum húsnæði leikskólans Balaborgar að Skólabraut 11. Bæjarráð heimilar flutning félagsaðstöðu eldri borgara á Stöðvarfirði og að starfsemi hefjist um næstu áramót í húsnæðinu. Fjölskyldusviði falið að skoða samlegðaráhrif við aðra starfsemi sveitarfélagsins. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2013. Jafnframt verði Leynimelur 7 settur á sölu og Skólabraut 11 tekin af sölu.
6.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2012
Framlögð dagskrá fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður 27. og 28. september. Elvar Jónsson, Guðmundur Þorgrímsson, Valdimar O. Hermannsson og Gunnar Jónsson, í fjarveru bæjarstjóra, munu sækja ráðstefnuna.
7.
Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2012
Fundargerð stjórnar SSA frá 3.september lögð fram til kynningar.
8.
Heilbrigðisáætlun til umsagnar
Óskað er eftir umsögnum um heilbrigðisáætlun stjórnvalda til ársins 2020, fyrir 25.september. Vísað til félagsmálanefndar.
9.
Kynning á verkefninu OpenStreetMap
Ósk um aðgang að kortagögnum vegna alþjóðlega verkefnisins OpenStreetMap. Vísað til framkvæmdasviðs til afgreiðslu og til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
10.
Könnun sambandsins og FG á grundvelli bókunar 2 með kjarasamningi
Niðurstaða könnunar Sambands sveitarfélaga og Félags Grunnskólakennara á ýmsum þáttum er snúa að skólastarfi og starfi kennarans, lögð fram til kynningar. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.
11.
Make it happen - lokaráðstefna
Lokaráðstefna "Make it happen" verður haldin dagana 25. - 28.september á Egilsstöðum, Seyðisfirði og Stöðvarfirði.
12.
Rekstur, framlög og fjárhagsáætlun Héraðsskjalasfns Austfirðinga bs. fyrir árið 2013
Bréf Hrafnkels Lárussonar forstöðumanns Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 5.september, auk draga að fjárhagsáætlun safnsins fyrir árið 2013 og tillaga að skiptingu framlaga sveitarfélaganna. Atvinnu- og menningarnefnd gerði ekki athugasemd við framkomna beiðni um hækkun á framlagi til safnsins á árinu 2013. Bæjarráð samþykkir tillögu forstöðumanns safnsins, að framlagi Fjarðabyggðar á árinu 2013, enda rúmist hækkun innan fjárhagsramma menningarmála.
13.
Stofnun samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Bréf fimm bæjarstjóra vegna hugmynda um stofnun samtaka sjávarútvegssveitarfélaga. Stefnt er á að halda stofnfund samtakanna 26.september á Hótel Nordica í Reykjavík. Bæjarráð samþykkir að vera stofnaðili að nýjum samtökum sjávarútvegssveitarfélaga og að bæjarritari, í fjarveru bæjarstjóra, fari með atkvæði Fjarðabyggðar á stofnfundi.
14.
Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð
Framlagðar upplýsingar um breytingar á íbúasamsetningu í Fjarðabyggð síðustu mánuði.
15.
Snjóflóðavarnir á Drangagilssvæði í Neskaupstað
Úttekt á snjóflóðavörnum í Drangagili. Fyrir liggur aðkallandi viðhald sem ekki var gert ráð fyrir á fjárhagsáætlun 2012. Lagt fram minnisblað framkvæmdasviðs frá 16.september en þar kemur fram að áætlaður kostnaður er um 3 milljónir. Bæjarráð heimilar að ráðist verði í nauðsynlegt viðhald. Bæjarstjóra falið að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun, á næsta fundi bæjarráðs, þar sem fjárheimildir eru færðar á milli fjárfestingar og reksturs.
16.
Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga
Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga verður haldinn föstudaginn 28.september kl. 13:00 í Hörpu. Bæjarritari, í fjarveru bæjarstjóra, verður fulltrúi Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
17.
Fundagerðir Skólaskrifstofu Austurlands 2011 - 2012
Fundargerð framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 12.september lögð fram til kynningar. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar og félagsmálanefndar.
18.
Atvinnu- og menningarnefnd - 34
19.
Fræðslu- og frístundanefnd - 28
20.
Hafnarstjórn - 103