Bæjarráð
309. fundur
18. september 2012
kl.
17:00
-
19:30
í þjónustumiðstöðinni í Neskaupstað
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Félagsmálanefnd
Þennan lið fundarsins sat formaður félagsmálanefndar og félagsmálastjóri. Yfirferð yfir fjárhagsáætlun málaflokksins.
2.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Barnaverndarnefnd
Þennan lið fundarins sat félagsmálastjóri. Yfirferð yfir fjárhagsáætlun málaflokksins.
3.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013-Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Þennan lið fundarins sátu mannvirkjastjóri og formaður eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. Yfirferð yfir fjárhagsáætlun málaflokksins.
4.
Samvinna vinnuskóla Fjarðabyggðar og Verkmenntaskóla Austurlands
Bæjarstjóri kynnti drög að samkomulagi um samvinnu milli VA og Vinnuskóla Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri vinni áfram að málinu.